stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir andsvarið. Ég er honum sammála í grundvallaratriðum og tel að það sé núna mikilvægara sem aldrei fyrr að stjórnmálaflokkar stilli sig um að slá pólitískar keilur með því að ræða um mikilvægi þess að það sé hér tvíhliða samstarf við Evrópusambandið í öryggis- og varnarmálum. Við eigum að ýta undir samfélagssáttina í þessu landi. Hún hefur aldrei verið mikilvægari og ég held að flestir stjórnmálaflokkar, ætla ekki að fullyrða um alla, hafi mikinn hag af því að almenningur treysti þeim og okkur, ekki bara ríkisstjórninni heldur stjórnmálaflokkunum almennt og að stjórnmálaflokkarnir geti þjónað almenningi og séu boðnir og búnir að vera í þjónustu við hann og þeim sé umhugað um það að öryggi almennings sé tryggt. Þegar við förum bara í umræðuna á einhverjum forsendum og reynum einhvern veginn að grípa bolta sem stjórnarandstöðuflokkur án þess að kannski gefa því gaum hvernig maður myndi sjálfur gera hlutina væri maður í ríkisstjórn, þá eru hlutirnir fljótir að súrna. Ég er ekki viss um að Sjálfstæðisflokkurinn hefði t.d. hafnað heimsóknarbeiðni fulltrúa Evrópusambandsins, hefði hann verið hér við völd þegar það boð barst í sumar sem leið, bara svo það sé sagt. En ég fagna þeim tóni sem ég tel að hv. þingmaður sé að slá og við erum öll á einu máli um að hvað sem líður framtíð Íslands innan Evrópska efnahagssvæðisins þá verðum við að eiga mjög öflugt og gott samtal við Evrópusambandið, það á líka við um Kanada og Bretland. Við eigum það við Bandaríkin. En við þurfum að efla ásýndina og ég fagna því að ég heyri ekki neinar efasemdarraddir um það hér í dag.