stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég ætla ekki að fara í djúpa umræðu um þessa tengingu en svona var skynjunin. Þegar Ursula von der Leyen kemur hérna um miðjan júlí þá er þetta svolítið umræðan sem tengist þeirri heimsókn, það er farið inn á þessar lendur, að við eigum að ganga í Evrópusambandið til að tryggja öryggi og varnir landsins og það sem snýr að þessum þætti hefur verið svolítið undirliggjandi í þessari umræðu í töluverðan tíma. Nú er það bara staðreynd að innan Atlantshafsbandalagsins koma um 80% af fjárveitingum til bandalagsins frá þeim ríkjum sem eru utan Evrópusambandsins. Innan NATO eru, að mig minnir, 23 af 27 Evrópusambandsríkjum, það eru 32 NATO-þjóðir og 9 eru utan Evrópusambandsins og fjárveitingar frá þeim standa undir um 80% af fjárveitingum. Nú vitum við það að Evrópusambandslöndin eru að reyna að gera sitt besta núna til að bæta úr og það hefur staðið til lengi. Bandaríkjamenn hafa kallað mjög lengi eftir því að NATO komi sterkar inn í fjárveitingarnar en þetta mun taka mikinn tíma. Þetta er ekki lykilatriði á þessum tíma varðandi umræðu um Evrópusambandið. Þessu verður bara að halda algerlega til haga. Það er síðan bara hið besta mál að ræða við Þjóðverja og gera svona tvíhliða samkomulag sem hefur svo sem ekki bindandi afleiðingar eða annað, og við Finna og fleiri ríki eins og við gerðum við Dani og Norðmenn, minnir mig, 2007, 2008, 2009 eða hvenær það var. Það er besta mál. En það þarf bara að fá þetta algjörlega hreint og beint fram í umræðunni að aðild að Evrópusambandinu, að Ísland gangi í Evrópusambandið, er ekki lykilatriði varðandi varnir og öryggi íslensku þjóðarinnar.