157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[14:13]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Mig langar aftur að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir framsöguna þar sem hún fylgdi úr hlaði þingsályktunartillögu um öryggis- og varnarmál hér í dag. Mig langar líka að þakka fyrir umræðuna sem hefur fylgt í kjölfarið.

Við vitum öll hér inni að öryggis-, varnar- og alþjóðamál hafa tekið neikvæðum breytingum síðustu ár þar sem öflug ríki hafa farið fram með hernaði gegn öðrum ríkjum og þannig virt að vettugi alþjóðalög og -samninga, landamæri og fullveldi sjálfstæðra ríkja. Þá hafa varnir og öryggi ríkja og innviða þeirra orðið viðkvæmari fyrir árásum og skemmdarverkum með útbreiðslu nýrrar tækni og þekkingar til að nýta hana til ógnar og ögrunar. Samhliða þátttöku í Atlantshafsbandalaginu og framkvæmd tvíhliða varnarsamningsins við Bandaríkin er nauðsynlegt að efla þær borgaralegu stofnanir sem sinna gæslu öryggis þjóðarinnar, lögreglu, landhelgisgæslu og netöryggissveitina, samhliða aðlögun almannavarnakerfisins að aukinni hættu af ytri ógnum. Saman standa þessar stofnanir nefnilega vörð um öryggi og varnir lands og þjóðar.

Það er mjög tímabært að við ræðum öryggis- og varnarmál, ytri og innri ógnir og þá öryggi og varnir jafnhliða og gerum stefnur og áætlanir miðað við gildandi lög og skipan mála. Við stöndum frammi fyrir nýjum og flóknari viðfangsefnum á sviði öryggismála en nokkru sinni fyrr. Skyldur okkar gagnvart NATO, Bandaríkjunum og öðrum bandalagsríkjum tóku miklum breytingum við brottför bandaríska varnarliðsins héðan árið 2006. Um það verður held ég ekki deilt. Ég vil minna á að eftir að uppstokkunin var gerð við brotthvarf Varnarmálastofnunar árið 2010 hefur þjóðaröryggisráð komið til sögunnar, samhæfingarráð í þjóðaröryggismálum undir formennsku hæstv. forsætisráðherra. Utanríkisráðherra, dómsmálaráðherra og fleiri ráðherrar sitja í ráðinu en þeim ráðherrum mætti mögulega fjölga, þ.e. ef við tökum okkur t.d. til fyrirmyndar Finna og þeirra nálgun á þjóðaröryggismálin. Ég gat raunar ekki séð að minnst væri einu orði á þjóðaröryggisráð í þingsályktunartillögunni sem við erum að ræða í dag en kannski hefur mér yfirsést. Mér þætti eðlilegt að þjóðaröryggisráð gegndi samhæfingarhlutverki á hættutímum og tryggði þannig að boðvald yrði skýrt og ákvarðanir teknar á réttum vettvangi með þátttöku allra helstu ráðuneyta.

Áður en lengra er haldið vil ég segja að ég hef fengið jákvæð viðbrögð við þingsályktunartillögu Miðflokksins um öryggis- og varnarmál sem ég kynnti hér fyrr í vikunni. Tillagan var lögð fram vegna þess að öryggis- og varnarmálin eru svo gríðarlega mikilvæg og þau þarf að yfirvega heildstætt. Að sama skapi er nauðsynlegt að stefna í þessum mikilvæga málaflokki verði hluti af stærri heild, byggi á sterkum grunni í þjóðaröryggisstefnu og verði órjúfanlegur hluti hennar. Vandinn við sérstaka stefnu í öryggis- og varnarmálum sem samin er í einu tilteknu ráðuneyti er ákveðinn freistnivandi — og ég hef stundum talað um landvinningastefnu eða -vanda og þetta er vandi innan Stjórnarráðsins — til að fella sem flesta þætti undir tiltekin ráðuneyti þó að í reynd sé sviðsábyrgð viðkomandi ráðuneytis aðeins einn hluti af heildarörygginu og annað á ábyrgð annars ráðuneytis samkvæmt núgildandi lögum. Slíkt getur valdið misskilningi, togstreitu og rangri forgangsröðun. Nákvæmlega þennan freistnivanda merkti ég í þingmannaskýrslunni frægu og þingsályktunartillögunni sem við ræðum hér í dag. Ég tek fram að ég ætla engum neitt illt og við erum öll að gera okkar besta en ég bara þekki of vel til innanlandsmála í Stjórnarráðinu er varðar landvinningamálin. Ég vara við því ef vilji er til sátta að þessi landvinningastefna sé dregin inn í þessa vinnu og þetta mikilvæga mál sem varnar- og öryggismálin eru. Við þurfum að aðskilja það algerlega. Við getum komist fram hjá freistnivandanum og ég ætla að koma að því á eftir.

Í þjóðaröryggisstefnunni er mælt fyrir um grunnþætti stefnu þjóðarinnar í öryggis- og varnarmálum en hins vegar hefur öryggis- og varnarstefnan ekki verið felld inn í þjóðaröryggisstefnuna enn sem komið er. Hér hefur verið litið á þá stefnumótun sem verkefni á ábyrgð utanríkisráðherra og þeirri sem stendur hér finnst það óeðlileg skipan þar sem öryggi og varnir lands og þjóðar eru ekki eingöngu á hendi utanríkisráðuneytisins. Það er alveg klárt að um er að ræða vandasamt verk sem snertir svið margra ráðuneyta og stofnana og því bæði rétt og eðlilegt að forsætisráðherra, sem jafnframt er formaður þjóðaröryggisráðs, komi að þessari vinnu og jafnvel leiði að einhverju marki. Þannig t.d. rofna áhyggjur af freistnivanda og trúin eykst á að vinnan eða stefnan verði heildstæð. Það er líka þannig að margar stefnur auka hættu á skörun og veseni. Mótun stefnu á þessu sviði á að vera hluti af gerð þjóðaröryggisstefnunnar, enda nær framkvæmd hennar til stjórnkerfisins alls, og eðlilegt að þjóðaröryggisráð sé samnefnari á þessu sviði eins og öðrum sem snúa að öryggi þjóðarinnar, líkt og ég sagði áðan. Í fyrirrúmi slíkrar stefnu eiga öryggi og varnir þjóðarinnar að vera og ekkert annað.

Í þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra segir, með leyfi forseta:

„ Stefna stjórnvalda um varnar- og öryggismál byggist á þeim skuldbindingum sem felast í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafssáttmálanum, tvíhliða samningum við önnur ríki og grunnstefnu Atlantshafsbandalagsins. Stefnan verði hluti þeirrar heildarmyndar sem þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland felur í sér og taki til hernaðarlegra áhættuþátta.“

Taki til hernaðarlegra áhættuþátta eingöngu — öryggis- og varnarmálin eru flókin og það er ekki alltaf hægt að skilja á milli hernaðarlegra og borgaralegra þátta. Stundum kemur ógnin að utan og innlendu viðbrögðin eru þá frá almannavörnum sem eru borgaralegar stofnanir. Þetta er flókið og erfitt að skilja og kannski er það ekki hægt. Mér finnst óheppilegt að taka út eina ógn, í þessu tilviki hernaðarógn, sérstaklega þegar kemur að þjóðaröryggi. Nú þegar er bent á þetta í einni umsögn sem er komin undir þetta mál á vefnum þar sem tekið er undir það að óheppilegt sé að hér sé tekin út ein ógn. Hvað varðar borgaralegan viðbúnað þarf í reynd að tryggja sömu viðbrögð vegna annarra ógna en hernaðarlegra sem í reynd er líklegra að þurfi að takast á við. Almannavarnir eru borgaralegt verkefni, sama hvort ógnin er fjölþátta, af manna völdum, kerfisbundnum fólksflutningum, útsendurum erlendra ríkja, falsfréttum, hryðjuverkum, og ég gæti haldið áfram að telja endalaust. Um er að ræða heildstætt kerfi sem tekur mið af heildarsýn á ógnir og hefur reynst vel. Mér finnst ekki ganga upp að taka út eina ógn, en þetta er hægt að laga. Ef þessi stefna á einungis að taka til hernaðarlegra ógna getur hún tæplega kallast stefna í öryggis- og varnarmálum, a.m.k. er hún ekki heildstæð.

Í greinargerð með tillögu utanríkisráðherra sem sett er fram í 13 liðum má í því sem segir um tvo lokaliðina einmitt sjá hugleiðingar í þá veru að skilgreina þurfi hlut utanríkisráðuneytis betur og skerpa á heimildum þess, með leyfi forseta:

„Vert er að skoða hvort þessum varnartengdu verkefnum“ — sem nú eru hjá lögreglu og landhelgisgæslu — „væri betur fyrir komið hjá einni sérstakri einingu sem heyrði undir utanríkisráðuneytið eða hvort byggja ætti áfram á núverandi skipulagi með skýrari ramma.“

Hér þarf að stíga varlega til jarðar, svo ekki sé fastar að orði kveðið, og huga vel að hverju skrefi. Ég heyrði ekki betur á orðum utanríkisráðherra í andsvörum áðan en að það stæði ekki til að stofna nýja einingu undir utanríkisráðuneytinu og það væri bara mjög gott ef ráðherra gæti slegið slík áform út af borðinu í þessari umræðu. Þá væri alla vega einhver vandi leystur. Ég vara við hugmyndum um útvíkkun verkefna þess ráðuneytis sem fer með varnarmál inn á svið borgaralegra stofnana sem fara með innra öryggi, löggæslu og almannavarnir. Ef ætlunin er að endurvekja Varnarmálastofnun með sérstakri einingu innan utanríkisráðuneytisins er gott að halda til haga að sú stofnun reyndist óþörf á sínum tíma og var fljótlega lögð niður. Núverandi skipulag hefur reynst vel og ætti að styrkja, ekki að búa til nýjar einingar eða stofnanir undir utanríkisráðuneytinu.

Síðustu árin hefur helst verið litið til þjóðaröryggisstefnu Finnlands sem fyrirmynd um heildstæða nálgun alls samfélags þegar kemur að öryggismálum. Ég mæli með því að þessi stefna Finnlands verði skoðuð gaumgæfilega og hvort hún gæti ekki nýst okkur í okkar vinnu.

Frú forseti. Ég er alveg að ljúka máli mínu og vil enda á því að segja þetta: Gerum þetta vel. Gerum stefnuna í öryggis- og varnarmálum heildstæða, höfum stefnu Finna til hliðsjónar, byggjum hana á þjóðaröryggisstefnunni okkar og látum hana verða órjúfanlegan hluta hennar. Ég tel afskaplega mikilvægt að allir flokkar á Alþingi geti náð saman um stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum. Það er hægt (Forseti hringir.) en það krefst vinnu. Ég er sannfærð um að ef allir leggjast á eitt og raunverulegur vilji er fyrir hendi sé þetta mögulegt.