157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[14:24]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka ræðuna og vinnuna sem hv. þingmaður hefur svo sannarlega innt af hendi í mjög mikilvægu máli. Mig langar að draga fram ákveðna hluti. Fyrir það fyrsta eru stofnanir bara hreint og klárt verkfæri; það eru engin trúarbrögð. Ég held að þegar við horfumst í augu við þær ógnir sem við stöndum frammi fyrir þá séum við einfaldlega að gera það sem allar aðrar þjóðir hafa verið að gera. Þær hafa verið að endurmeta sitt innra skipulag, sína stöðu og sínar stofnanir. Hvernig er hægt að styrkja það? Ég legg áherslu á það að dýnamíkin hér heima á Íslandi, sem við verðum að varðveita, m.a. af reynslu í gegnum almannavarnakerfið, felst í því að það er verið að vinna þvert á stofnanir. Ég greini alveg að hv. þingmaður endurómar einhverja hræðslu og taugaveiklun innan ákveðinna stofnana, að það sé hugsanlega verið að breyta strúktúrnum og færa til verkefni. Öryggi og varnir eru alltaf í fyrirrúmi og það er það sem við munum einbeita okkur að, að styrkja þær stoðir sem fyrir eru en ekki síður að reyna að efla okkar grunnþekkingu og styrkja mannauðinn.

Það sem ég vil draga fram, virðulegi forseti, er að hjá Miðflokknum er hér verið að vitna í finnsku skýrsluna, Government Report on Internal Security, en hún er ein af þremur tengdum skýrslum. Það eru tvær aðrar sem finnska ríkisstjórnin hefur sent þinginu. Annars vegar er þar fjallað um utanríkis- og öryggismálastefnu Finnlands og svo vill til að það er líka send stefna um varnarmál, þ.e. varnarmálastefnu Finnlands. Þetta allt undirstrikar að þessi ríki eru öll, ekki síst þessar vinaþjóðir okkar sem eru okkur svo nátengdar, að endurskoða sig og eru ekki feimin. Það er hlutverk okkar stjórnmálamanna og ekki síst okkar (Forseti hringir.) sem höfum ákveðna reynslu, bæði innan úr stjórnkerfinu en líka víðar að í samfélaginu, að sjá einmitt hvar sóknarfærin eru til að efla og styrkja varnir landsins. Við munum nýta okkur þau tækifæri í samvinnu þvert á alla flokka.