stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir andsvarið. Ég vil bara segja það strax að sú sem hér stendur er ekki að enduróma neina taugaveiklun innan einhverra stofnana. Sú yfirlýsing er fullkomlega á misskilningi byggð. Ef hæstv. utanríkisráðherra hyggst koma hér í annað andsvar við mig þætti mér afskaplega vænt um ef hún gæti svarað spurningunni, sem kannski hefur farið fram hjá henni eða sem ég óskaði svara við í mínu innleggi hér áðan, hvort hún geti hér í þessari umræðu í dag bara hreinlega slegið út af borðinu að til standi að stofna einhverja sérstaka einingu undir utanríkisráðuneytinu sem sé að fara að taka til sín aukið hlutverk en þess í stað verði bara byggt á því kerfi sem við höfum styrkt. Getur hæstv. utanríkisráðherra staðfest að ekki standi til að stofna sérstaka einingu?