stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi 13. liðinn, sem hann spyr sérstaklega um þá er það sem ég hef áhyggjur af — og hæstv. utanríkisráðherra hefur ekki viljað slá það út af borðinu í umræðunni — er að það standi til að endurvekja Varnarmálastofnun sem var lögð niður vegna þess að hennar var ekki þörf. Ég er alveg fullkomlega sammála því að við þurfum að styrkja almannavarnakerfið. Við þurfum að styrkja Landhelgisgæsluna. Við þurfum að styrkja okkar borgaralegu stofnanir en við þurfum ekki nýja stofnun til þess að gera það. Við eigum að byggja á núverandi fyrirkomulagi, ekki búa til nýtt batterí, einingu, stofnun eða hvað sem það er kallað. Það er það sem þetta snýst um í mínum huga.