stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það væri bara mjög fínt ef ég gæti spurt hann sömu spurninga og hann er búinn að vera að spyrja, en það er víst ekki hægt í þessari umræðu. Ég vil bara að ganga hreint til verks og ef menn geta ekki sagt það hér hreint og klárt — mér virðist það vera bara greinilegt að það standi til að stofna sérstaka einingu undir utanríkisráðuneytinu sem tekur til sín ákveðin verkefni. Af hverju er þá ekki bara hægt að segja það? Af hverju er ekki hægt að segja það frekar en að vera með, ja, það er kannski ekki gott að nota orðið útúrsnúninga. En af hverju er ekki hægt að segja að það standi til? Ég er ósammála því að það sé þörf á slíku og minni aftur á það að Varnarmálastofnun var lögð niður árið 2010 vegna þess að það var ekki þörf á henni. (Gripið fram í.) Af hverju er mögulega áætlun um að endurvekja slíkt? Af hverju er það sagt í greinargerðinni, gefnir tveir kostir? Hæstv. utanríkisráðherra er greinilega ekki tilbúin til þess að slá út þann kost að það eigi að stofna sérstaka einingu undir ráðuneytinu. Ég er þeirrar skoðunar að það sé óþarfi. (Utanrrh.: … fara í þessa vinnu. ) Ja, verið að fara í þessa vinnu, ég heyri hvað utanríkisráðherra er að segja hér í dyragættinni. (Utanrrh.: Ætlarðu ekki að taka þátt …) Er verið að fara í þessa vinnu? (Utanrrh.: Þingmenn munu fara yfir …(Forseti hringir.)) Af hverju er ekki hægt að slá þetta út af borðinu? (Utanrrh.: Hvaða della er þetta?)
(Forseti (IngÞ): Ræðumaður hefur orðið. Ég minni hv. þingmenn og hæstv. ráðherra að eiga ekki í samtölum við ræðumann í pontu heldur gefa þingmanni orðið.)