stefna í varnar- og öryggismálum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir þessa spurningu. Nei, ég hef í sjálfu sér ekki áhyggjur af þessu. Ég hef engar áhyggjur af því að rödd Íslands verði með einhverjum hætti veikari, algerlega sama á hvaða sviði það er, jafnvel þótt við yrðum fullgildir meðlimir í Evrópusambandinu, ég hef bara ekki nokkrar einustu áhyggjur af því. Ég held að það sé mjög gott, eins og ég sagði áðan í ræðu minni, alveg sama hvort við erum að huga að norðurslóðum, hvort við erum að huga að varnar- og öryggismálum eða bara almennt öllu samtali í alþjóðamálum, að rödd okkar heyrist sem víðast. Þess vegna hef ég m.a. talað fyrir því að Íslendingar eigi að vera aðilar að Evrópusambandinu. Mér finnst þetta bara allt fara heim og saman. Ég var að nefna að öryggis- og varnarstefnan þarf að vera virk og það þarf að vera samstaða um hana, algjörlega óháð því hvaða skoðun við höfum á því að ganga í Evrópusambandið eða ekki. En við eigum hins vegar ekki að vera hrædd við umræðu um að fara þangað inn. Það veikir okkur ekki að fara þangað inn. Ég held að það styrki okkur út frá varnar- og öryggismálum að gera það. En svo getur hv. þingmaður auðvitað verið ósammála mér í því. Það veikir ekki áherslur okkar á norðurslóðum heldur gefur okkur kannski þvert á móti færi til að tala fyrir hagsmunum okkar og hagsmunum norðurslóða á öðrum vettvangi sem við gerum ekki í dag. Mér finnst hálfleiðinlegt að hv. þingmaður sé ekki sammála mér um það. Ég held að það sé bara hið besta mál að við séum í sem nánustum tengslum við Evrópu og Evrópusambandið, helst með því að ganga inn vegna þess að það tryggir alla okkar hagsmuni betur en er í dag. Ég vona að ég sé að svara spurningunni. Ég hef ekki áhyggjur af þessu og mér finnst engin ástæða til að vera að búa til einhvern ótta við Evrópusambandið á þessum forsendum. En ég held nú reyndar að það hafi ekki verið það sem vakti fyrir hv. þingmanni.