157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[14:56]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það sem sá sem hér stendur var kannski meira að koma inn á var að þessi átta ríki, sjö NATO-ríki, Norður-Atlantshafið, Noregur og Ísland utan Evrópusambandsins, við vitum náttúrlega ekki hvað gerist með Grænlendinga og Grænland á næstu árum, hvernig það allt saman fer. Kanada og Bandaríkin eru ekki hluti af Evrópusambandinu — þetta eru lönd sem við höfum samskipti við sem snúa að norðurslóðum og síðan Norður-Atlantshafinu, þjóðir þar. Og Bretar, gleymum þeim ekki, þeir hafa gríðarlegan áhuga á Norður-Atlantshafinu og varnar- og öryggismálum á því svæði. Við getum haft meiri stefnu og talað okkar máli með beinum hætti við þessi lönd, það er kannski meira það, svona hvernig við lítum á okkar tengsl, heldur en að vera í ríkjasambandi sem er meira og meira að taka yfir alla stefnu, eins og mér fannst vera svolítið boðað og kom fram í máli hæstráðanda í Evrópusambandinu á Norðurlandaráðsþinginu í síðustu viku í Stokkhólmi. Það er þessi nálgun, hvernig við förum með þetta. Þetta er kannski eitt af helstu málum okkar Íslendinga og hefur skapað og skilgreint okkar hlutverk í alþjóðamálum. Við erum með kynjamálin, „gender polity“, afsakaðu, forseti, við erum með málefni sem snúa að norðurslóðum, við erum með háhitann. Þetta eru okkar svona sératriði sem við getum alltaf boðað og haft mikil áhrif víða sem slík þegar við ræðum það sem snýr að þessari nálgun, við sem fullvalda ríki sem förum með okkar málefni sem snúa að þessu. Ég held að það sé öllum ljóst (Forseti hringir.) að þessi mál munu vaxa mjög í allri umræðu á næstu árum og áratugum eftir þá gjörbreytingu sem hefur orðið bara á örfáum árum, síðustu fjórum, fimm árum.