stefna í varnar- og öryggismálum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir þetta og ég ætla nú reyndar að nota tækifærið og hrósa hv. þingmanni fyrir það hversu öflugur og ötull hann hefur verið að tala um öryggis- og varnarmál í víðu samhengi og var byrjaður á að benda á alls konar hluti löngu áður en íslenskt samfélag kannski tók við sér í þeirri umræðu sem snertir þær ógnir sem standa okkur næst nákvæmlega núna. En ég ætla bara aftur að segja almennt: Við eigum að vera sem víðast þátttakendur í góðu alþjóðlegu samstarfi. Það eru auðvitað margar þjóðir sem eiga hagsmuna að gæta á norðurslóðum, líka Danir, Finnar, Svíar, þessar þjóðir eru í Evrópusambandinu, Danir auðvitað með sín tengsl við Grænlendinga eins og við þekkjum. Við eigum að taka þátt í þessari umræðu í mjög víðu samhengi, tala fyrir okkar hagsmunum hvarvetna og reyna að samþætta með jákvæðum hætti okkar hagsmuni og hagsmuni þeirra ríkja sem eru næst okkur. Ég svara þessu bara svona almennt.
Ég ætla að lokum að árétta það að mér hefur þótt gott að heyra hvernig þessi umræða hefur farið fram hér í dag og fagna henni mjög. Við erum talsvert mikið sammála á Alþingi um stóru myndina í þessu og það skiptir gríðarlegu máli að svo verði áfram.