157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[15:21]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir þessa mikilvægu vinnu. Þá langar mig aðeins til að viðurkenna að ég var kannski einn af þeim mönnum sem áttaði mig hreinlega ekki á mikilvægi þess starfs sem þingmenn hafa talað um hér í þingsal í dag. Mér finnst svolítið gott það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir var að tala um áðan, að við ættum að fræða en ekki að hræða. Ég var eiginlega bara svolítið hræddur og ég var kannski svolítið hræddur vegna þess að ég var kannski ekki búinn að kynna mér þetta almennilega og ekki búinn að fá þessa reynslu sem ég hef fengið eftir að ég kom hingað inn á þing. Mig langar aðeins til að ræða það að þegar þessi vinna átti sér stað varð mér hugsað til, af því að ég er svolítið mikið fyrir sögu, hverfisstjóranna sem voru hér í Reykjavík og úti um allt land í seinni heimsstyrjöldinni. Hverfisstjórarnir fengu sérstaka hjálma frá Bretum sem voru merktir HS. Ásamt starfsmanni eða aðilum Rauða krossins og svo völdum lækni og einhverjum frá lögreglunni áttu þeir í raun að sjá til þess að koma, ef það skyldi vera gerð loftárás, fólkinu í sínum hverfum í öruggt skjól eða þá að læknirinn kæmi til hjálpar ef sprengjum hefði rignt á einhver hverfi. Þarna var kannski ákveðin framsýni. Menn voru að hugsa langt fram í tímann ef eitthvað skyldi gerast. Á hverjum fundinum af öðrum varð mér hugsað til þessa, að við þyrftum að vera framsýn. Við erum að hugsa fram í tímann, að sýna viðbúnað ef eitthvað kynni að gerast. Það er það sem er svo mikilvægt að við gerum. Þótt Ísland sé herlaust þýðir það ekki að við séum varnarlaus. Öryggi okkar byggir á samstöðu, almannavörnum og áfallaþoli sem miðast við það að samfélagið allt sé viðbúið að standa saman þegar á reynir. Í þessari stefnu er sem sagt loksins viðurkennt að öryggi þjóðar ræðst ekki bara af hernaðarmætti annarra heldur líka af okkar eigin getu til að vernda orkukerfi, fjarskipti, netöryggi og lýðræðið sjálft.

Þarna kemur skilningur á vörnum skýrt fram, þ.e. að varnir okkar eru mannlegar, samfélagslegar og byggðar á trausti og samvinnu. Með þessari stefnu sýnum við að Íslendingar eru herlaus en ábyrg þjóð sem stendur vörð um eigið öryggi, fullveldi og frelsi í samvinnu við vinaþjóðir sem deila sömu gildum. Ég verð að segja að ég er alveg ótrúlega þakklátur ykkur þingmönnum, ekki bara þeim sem voru í þessari nefnd heldur ykkur sem kannski hafið barist fyrir þessu síðustu ár, frá því að þið byrjuðuð. Hér kem ég nýr og er að læra af ykkur sem hafið þessa reynslu og hafið í raun og veru séð hvernig þessi mál hafa þróast með tímanum. Það gerir mig bæði að betri þingmanni og sem Íslending að betri þegn. Í dag mun ég fara með þessi orð, að fræða en ekki að hræða, og taka þau beint til mín vegna þess að eins og ég sagði var ég svolítið hræddur. Ég er það ekki lengur vegna þess að í samstöðunni sem er á milli okkar felst ótrúlegt mikilvægi. Þá tala ég um samstöðuna á milli okkar þingmannanna í nefndinni en líka almennt á milli okkar þingmanna. Þetta er eitthvað sem við eigum að rækta.