stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegi forseti. Ég vil fá að þakka fyrir þessa umræðu hér í dag sem hefur verið bæði innihaldsrík og góð. Maður kemst ekki yfir allt í stuttri ræðu og ég gerði mitt besta en vildi fá að bæta aðeins við og taka undir það sem hér hefur komið fram og setja kannski svolítið í kastljósið, að þegar við erum að hugsa um varnar- og öryggismál þá skiptir mjög miklu máli að átta okkur á breytingunum sem hafa orðið. Það er auðvitað hræðilegur landhernaður í gangi í Úkraínu og eðlilegt að NATO og Evrópa séu að bregðast við því. Það sem er í gangi þess fyrir utan hefur fengið fólk til að orða það þannig að það sé ekki stríð en það sé heldur ekki friður. Það eru þessar fjölþáttaógnir sem svo margir hafa komið réttilega inn á hér. Ég ætlaði að koma upp í andsvar við Sigurð Inga Jóhannsson alþingismann sem er nú ekki hér í salnum, alla vega enn sem komið er, en hann var bæði að ræða þetta en síðan einhvern veginn að gera lítið úr samstarfsaðilum, þ.e. Evrópusambandinu í þessu varnarmálasamhengi. Því var beint eða óbeint svarað af Njáli Trausta Friðbertssyni þingmanni sem minnti á það að ein helsta miðstöðin sem er í Evrópu og Finnar standa fyrir — þeir greiða þar helming framlaganna en bæði Evrópusambandið og NATO og 36 aðrar þjóðir koma að — er á sviði fjölþáttaógna. Rétt eins og Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður sagði þá er svolítið viðurhlutamikið að grípa til viðbragða á grundvelli 5. gr. samnings NATO. Það sem allar þjóðir, meira eða minna í álfunni okkar, eru að glíma við eru viðbrögð við alls konar öðrum hlutum sem eru miklu líklegra viðfangsefni okkar og eru það bara þegar í dag. Stórfyrirtæki og stofnanir á Íslandi hafa orðið fyrir netárásum. Við verðum vör og kannski of lítið vör, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi, við alls konar áhrif á umræðuna og alls konar upplýsingamiðlun sem er meira gerð til að rugla heldur en greina og ýta undir lýðræðið. Ég er því ánægður með þessa umræðu en vil bara brýna okkur öll í því í næstu skrefum og áframhaldandi vinnu að við verðum alltaf að passa okkur á því að heimurinn er að breytast. Við þurfum að taka skrefið til baka og leyfa okkur að hugsa samspil og mikilvægi stofnana í þessu sambandi upp á nýtt, og má ég kannski bara segja fordómalaust, því að tímarnir eru svo sannarlega breyttir. Það er engin tilviljun að þegar viðhorf almennings í Evrópu er kannað þá hefur stuðningur við Evrópusambandið innan Evrópusambandsaðildarlanda stóraukist eftir innrás Rússa í Úkraínu 2022. Könnunum ber líka saman um að varnarmálin séu eitt af því sem almenningi í þessum löndum er efst í huga varðandi gildi Evrópusamvinnunnar. Danir fóru í þjóðaratkvæðagreiðslu 2022 í kjölfar innrásarinnar og gerðust aðilar að varnar- og öryggishluta Evrópusamvinnunnar sem þeir höfðu ákveðið að undanskilja áður. Það var samþykkt með yfirgnæfandi meiri hluta að taka þar þátt. Þetta gerist á mjög svipuðum tíma og Svíar og Finnar gengu í NATO. Þetta er allt hluti af viðbrögðum og við eigum ekki að vera með blöð gamals tíma þegar við erum að fjalla um þetta og hugsa um þetta heldur hugsa um hagsmuni Íslands, varnar- og öryggishagsmuni Íslands á breiðum grunni og hvernig við erum best búin til að takast á við nýja tíma, nýjar ógnir og stöðuna eins og hún því miður er í heiminum í dag og þá óvissu sem því fylgir.