stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegi forseti. Ég vil hér í síðari ræðu minni bregðast við nokkrum atriðum sem komið hafa fram í umræðunni hingað til. Í fyrsta lagi umræðunni um hvernig þessi stefna fléttast við þjóðaröryggisstefnuna. Nú er hún til staðar og þetta er svona einn fótur undir hana. Það er hægt að hafa margar skoðanir á þessu en það er ekkert endilega víst að það væri best að hafa í einni stefnu möguleg viðbrögð okkar við hvers kyns áföllum sem á okkur gætu dunið, hvort sem það eru sóttvarnir, náttúruvár, hernaðarógn eða eitthvað annað, að það sé endilega best að hafa það allt saman í einu skjali. Við erum með sérstakar sóttvarnaáætlanir fyrir þau tilfelli og viðbrögð við annars konar náttúruvá líka og þetta er ein stefna þar undir, en mér finnst alveg sjálfsagt ef það á að skýra með einhverjum hætti samspil þessarar stefnu við þjóðaröryggisstefnu, hvort sem það er í nefndaráliti eða með öðrum hætti eða hafa einhver orð um hlutverk þjóðaröryggisráðs, þá finnst mér það vel skoðunarvert.
Í öðru lagi var svolítið talað um stofnanaumhverfi, hugsanlega varnarmálastofnun eða ekki, og hér lagt til að það hafi verið meðvituð ákvörðun að leggja niður Varnarmálastofnun vegna þess að hennar væri ekki lengur þörf. Fyrir mitt leyti leit ég á þá ákvörðun — og það kann að vera umdeilt, en mér fannst sú ríkisstjórn sem þá var við völd vera svolítið dugleg að fara inn og róta upp í hlutum og róta upp í stofnanaumhverfi og gera hluti upp á nýtt. Hún lagði m.a. niður Varnarmálastofnun. Ég er ekkert viss um að það hafi endilega verið eina rétta ákvörðunin á þessum tíma þó að hún hafi verið tekin. Kannski var verið að senda einhver skilaboð af hálfu eins flokksins sem var þá í ríkisstjórn. En þetta er ekkert heilagt mál fyrir mér, ég held að það sé vel hægt að koma varnar- og öryggismálum þannig fyrir að það sé sérstök stofnun, að við séum með skrifstofu innan ráðuneytisins eða einhverjar aðrar leiðir. Það er ekkert heilagt í þeim efnum fyrir mér og ég veit ekki til þess að það sé búið að ákveða eitthvað í þeim efnum. Það er náttúrlega bara ákvörðun næstu ríkisstjórna og sama hvað hver segir og lofar þá getur hvaða ríkisstjórn sem er ákveðið að breyta um stofnanastrúktúr hjá sér og ríkinu.
Varðandi stigvaxandi fjárframlög, hvort það sé einfaldlega hægt að tala um vaxandi eða aukin framlög. Ég held að þarna sé reynt að senda þau skilaboð að það sé ekki bara þannig að við hækkum aðeins og svo sé það búið, heldur séum við í ákveðinni vegferð við að koma okkur upp í þessar upphæðir sem aðildarríki NATO hafa skuldbundið sig til að gera sem þá partur af þessu 1,5% þannig að það sé þá skýrt. Það væri hægt að orða það með þeim hætti að það sé áfangaskipt hækkun eða með einhverjum þannig hætti. Ég held að það sé meiningin og engin ástæða til að tortryggja hana en aftur, þá væri hægt að skýra það með einhverjum hætti ef það gerir eitthvað gagn.
Síðan var umræða um orðalagið hernaðarleg ógn. Ég skildi það þannig að einhver þeirra sem voru með gagnrýnisraddir í garð þessarar tillögu og orðalagsins þar voru að meina að það væri of afmarkandi. Aftur, þá er það minn skilningur og var mjög ljóst af umræðunni að fólk telur, og það er sannarlega skilningur þeirra sem stóðu að þessari vinnu, að fjölþáttaógnir séu snar þáttur í því að bregðast við þeim áskorunum í varnar- og öryggismálum sem að okkur steðja, enda er það líklega einn sá mikilvægasti og sá sem dagsdaglega reynir mest á. Ef það er eitthvert tilefni til að skýra það frekar, hvort sem er í nefndaráliti eða með öðrum hætti, að við eigum við allar þessar áskoranir sem eru hluti af varnartengdum ógnum, þá er alveg ástæða til að bregðast við því.
Að lokum var hér náttúrlega aðeins rætt um Evrópusambandið og stundum sagt að Evrópusambandið hafi nánast ekkert með varnarmál að gera. Auðvitað voru Danir með undanþágu frá varnar- og öryggissamstarfi, þannig að einhverju voru þeir með undanþágu frá en þeir hafa horfið frá því. Svo það sé líka sagt og áréttað þá er það mín skoðun að aðild að NATO og tvíhliða samningar við önnur ríki séu kjölfesta í okkar varnarsamstarfi og ég myndi ekki út frá varnarlegu tilliti vilja skipta því út fyrir aðild að Evrópusambandinu og henda hinu. Það myndi alls ekki eitt og sér bæta varnarstöðu Íslands. En ég held að það séu hins vegar ákveðin sóknarfæri í því að starfa með Evrópusambandinu, hvort sem við stöndum innan þess eða utan. Annars þakka ég bara fyrir góða umræðu og hlakka til umræðunnar í nefndinni um þetta mikilvæga mál.