157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

viðurkenning á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.

48. mál
[17:15]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, nr. 26/2010, meðalhófsprófun, EES-reglur.

Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði tilskipun 2018/958 um meðalhófsprófun, áður en ný lögverndun starfsgreina er samþykkt. Markmið tilskipunarinnar er að koma í veg fyrir ótilhlýðilegar takmarkanir á aðgangi að lögvernduðum starfsgreinum eða iðkun þeirra og að tryggja eðlilega starfsemi innri markaðarins, gagnsæi og öfluga neytendavernd.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á fundi gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Málið er endurflutt en það var til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu 20. maí 2025 með áliti meiri hluta nefndarinnar, sem má finna á þskj. 533 í máli nr. 103 á því löggjafarþingi, en hlaut ekki lokaafgreiðslu fyrir þinglok.

Frumvarpið er nú lagt fram að nýju óbreytt. Nefndin hefur haft til hliðsjónar umsagnir sem borist hafa um málið, auk þeirra umsagna sem þegar liggja fyrir frá 156. löggjafarþingi, og eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis, sem og minnisblað frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar og þeirra áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti frá síðasta löggjafarþingi.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar vill meiri hlutinn árétta sérstaklega að í frumvarpinu er mælt fyrir um að stjórnvöld þurfi að framkvæma sérstakt mat áður en reglur um lögverndun starfs eru settar eða þeim breytt. Er þannig leitast við að tryggja að skorður við atvinnufrelsi séu eingöngu settar með það að markmiði að tryggja almannahagsmuni. Ef frumvarpið verður að lögum þurfa stjórnvöld að tryggja að meðalhófsprófun á nýjum eða breyttum reglum um aðgengi að lögvernduðum starfsgreinum, eða iðkun þeirra, fari fram og kanna þannig hvort önnur úrræði en löggilding geti náð því markmiði sem stefnt er að hverju sinni. Frumvarpið felur ekki í sér skyldu til að endurskoða eldri kröfur um löggildingu með hliðsjón af meðalhófi.

Loks tekur meiri hlutinn undir ábendingar sem fram koma í umsögnum þess efnis að mikilvægt sé að nánar verði mælt fyrir um framkvæmd meðalhófsprófunar í reglugerð sem ráðherra verður heimilt að setja.

Meiri hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins og telur brýnt að það nái fram að ganga, einkum í ljósi dóms EFTA-dómstólsins frá 5. desember 2024 í máli Eftirlitsstofnunar EFTA gegn íslenska ríkinu, nr. 9/24, þar sem dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að Ísland hefði ekki staðið við skyldu sína að innleiða tilskipun um meðalhófsprófun í landsrétt.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir álitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Grímur Grímsson, Víðir Reynisson, Gylfi Ólafsson, Ingibjörg Isaksen og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.