157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[18:28]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen kærlega fyrir prýðisræðu. Ég er sammála hv. þingmanni að málið er ekki alveg nógu gott, eiginlega mjög slæmt. Mig langaði aðeins að spyrja hv. þingmann út í orð hans þegar hann segir að þetta grafi undan leikreglum markaðarins. Tekur hv. þingmaður undir með mér að það sé óeðlilegt að þeir megi t.d. ekki vísitölutengja samninga á meðan einkaaðilar eða einstaklingar sem leigja út þessar íbúðir lúta allt öðrum lögmálum þegar þeir taka lán fyrir íbúðunum? Þar má vísitölutengja. Í því samhengi mætti kannski geyma þetta mál þar til komin er einhver lausn í nýfallna dóma um það hvernig reglurnar verða á næstu árum. Fyrsta spurningin er hvort þetta sé ekki mjög skakkt, þegar önnur hliðin má en hin ekki. Svo er það sem ég átta mig ekki alveg á, sem hv. þingmaður kom reyndar aðeins inn á, að það fer ekki saman það sem ríkisstjórnin segist vera að gera og það sem hún gerir. Það er auðvitað ekki í fyrsta skipti sem við stöndum frammi fyrir því en ég botna ekki í hvort það sé kannski raunverulega með þessu frumvarpi verið að reyna að fækka eignum til leigu þannig að fleiri eignir verði hægt að kaupa, af því að það vantar eignir. Frumvarpið virðist frekar snúa að því að allir vilji ekki vera með íbúðir í útleigu en það er ekki sagður tilgangurinn með því. Getur hv. þingmaður útskýrt af hverju eitt er sagt en annað gert?