157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[18:30]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir gott andsvar. Svo ég byrji á því sem hv. þingmaður nefndi í lokin, hvort dulbúinn tilgangur frumvarpsins væri að fækka leiguíbúðum og reyna að koma fleirum í séreign, þá held ég að það geti illa verið vegna þess að fólk sem er á leigumarkaði þarf í einhver hús að venda. Því væri sérstök stefna að henda því út á gaddinn og láta einhverja aðra kaupa íbúðirnar, því að ekki getur það sjálft keypt þær eða það er alla vega ólíklegt miðað við að fólk hafi verið á leigumarkaði í upphafi. Svo er svarið við hinni spurningunni, þeirri fyrri, að það er bara ágætt að fólk sem á mögulega eitthvert fjármagn geti nýtt það til að kaupa eignir og leigja fólki þær á sanngjörnu og eðlilegu verði og skapað þannig frjóan, virkan og samkeppnishæfan leigumarkað. En það gleymist kannski að fæstir hafa það mikil fjárráð að þeir geti keypt eignir án þess að taka lán. Lán þeirra sem kaupa eignirnar eru auðvitað með vöxtum og verðtryggð og fylgja vísitölu og greiða þarf af þeim lánum. Þetta er því ekki allt saman fundið fé fyrir leigusalana enda gætu þeir líka fjárfest í öðru en leiguhúsnæði, sem gefur oft miklu meiri arðsemi. Því er þetta ekki eðlilegt og mér þætti gott að bíða á meðan þessi ofboðslega mikla óvissa er uppi á markaðnum um hvaða lán eru lögleg og hver ekki. Það væri eðlilegt að hinkra aðeins.