húsaleigulög.
Forseti. Ég þakka svarið og vil kannski byrja á að taka það fram að ég myndi fagna ef ríkisstjórnin boðaði einhverjar aðgerðir til að hjálpa þeim sem eru fastir á leigumarkaði að eignast húsnæði. Ég er sammála því að þetta frumvarp er sennilega ekki hugsað til þess, þótt það ýti kannski frekar þeim sem eiga eignir í leigu út af þeim markaði.
Ég vil líka taka undir, ef ég skildi hv. þingmann rétt, að ég held að margir sem eiga íbúðir til útleigu séu ekki þessar grýlur með einhvern stórgróða eins og þessi ríkisstjórn virðist ítrekað halda um það fólk sem leigir út íbúðir. Það sem ég myndi einnig geta giskað á, sem ég held að sé nokkuð rétt, er að ef þetta væri skoðað þá væru þeir sem fjárfesta í íbúðum, hvort sem þeir eru með lán eða ekki, ekki að fá mikinn arð út úr því. Mögulega er það frekar hækkun á íbúðinni sjálfri. Þetta er kannski fólk sem á eignir og er að dreifa áhættunni með því að setja eitthvað í steypu. Ég yrði alla vega mjög hissa ef tölur sýndu að þeir sem ættu íbúðir væru að stórgræða á því að leigja þær út. Það þyrfti að leigja allar íbúðir á ansi háu verði til að það væri staðreyndin.
Mig langar að spyrja í seinna andsvari um það að hv. þingmaður sagði að tilgangur frumvarpsins og markmið væri að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika. Í umsögn Viðskiptaráðs kemur þó fram að þessum tilgangi verði ekki náð. Var ekki hlustað á það í nefndinni eða tekið neitt tillit til umsagnar Viðskiptaráðs?