157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[18:40]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Svona spurningar eins og hv. þm. Jónína Björk Óskarsdóttir, sessunautur minn hér í þinginu, kemur með um hvort ég sé ósáttur við skráningu HMS — hér er hægt að ræða um alls konar skráningar. Eru menn ósáttir við að skrá öll reiðhjól í borginni? Svarið við því væri mögulega bara: Nei, það er mjög gott að vita hve margir eiga reiðhjól. En þegar við erum að tala um fólk sem er að leigja út stök herbergi, við erum að tala um fólk sem er að leigja kannski til skamms tíma, að allt þetta fólk þurfi að fara í gegnum eins konar skráningarferli þar sem eru töluverð sektarákvæði ef menn skrá ekki, það þýðir bara eins og dæmin sanna að fólk mun síður fara með minni eignir og herbergi á markaðinn og þá minnkar nýtingin á húsnæði í borginni og í nærumhverfi borgarinnar þar sem mesta eftirspurnin er eftir leigu. Stutta svarið er því: Óþarfaskráning, já, það hefði þurft að skoða þetta miklu betur.

Hitt með það að þetta frumvarp gangi út á skráningu. Því miður eru hliðarverkanirnar þær að með 12 mánaða frystingunni og með flækjustiginu mun íbúum fækka og ef þeim fækkar þá mun verð hækka. Þetta eru hliðaráhrif sem ég veit að var ekki markmið frumvarpsins, ég geri mér fulla grein fyrir því, en hliðaráhrifin munu valda því að leiguverð mun hækka, að öllum líkindum. Það er kannski erfitt að segja 100% að það muni hækka en að öllum líkindum. Stutta svarið er því: Skráning þar sem þarf ekki að skrá er algjörlega óþarfaflækjustig og bara eykur vinnu og flækju allra á markaðnum.