húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. andsvarið. Ég er með spurningu til hans í framhaldi af þessu. Nú ertu að tala um að það hækki, það er þá með fyrirsjáanleika fyrstu 12 mánuði. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það getur vel verið að sumir hækki og taki einhverja áætlaða vísitölu inn í útborgunina en þá er það alla vega fyrirsjáanleiki fyrir þann sem er að leigja. Núna, eins og þetta er í dag, er enginn fyrirsjáanleiki. Kannski á þriggja mánaða fresti, þá hækkar leigan um 20–30 þús. kr. sem er orsakavaldur þess að fólk er að flytja út úr þessum íbúðum. Því langar mig til að spyrja hv. þingmann hvort hann haldi virkilega að leiguframboð dragist saman þó svo að menn þurfi að fara og gera eitt klikk í tölvunni, opna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, opna þar „link“ og skrá inn íbúðina. Heldurðu virkilega að íbúðirnar séu ekki verðmætari fyrir leigusalann í leigu en að þeir taki þær út af markaði og láti þær standa auðar?