húsaleigulög.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jónínu Björk Óskarsdóttur fyrir gott seinna andsvar. Ég get tekið undir það að fyrirsjáanleiki er góður en miðað við þær tölur sem hv. þingmaður nefnir hér, að íbúðir geti hækkað um 20–30 þús. kr. á þriggja til fjögurra mánaða fresti, þá er það þrisvar til fjórum sinnum á ári. Ef við ímyndum okkur að ég sé leigusali sem hafi hugsað mér að gera þetta, ef við bara reiknum það miðgildi, fjórum sinnum 25 þús. kr. hækkun fjórum sinnum á ári, það eru 100 þús. kr., að ég klíni því bara fremst í leigusamninginn, að hækka hann um 100 þús. kr. á ári af því að ég ætli mér að hækka um þessa sveiflu eins og hv. þingmaður nefnir, þá erum við bara komin með eins og ég nefndi í ræðu minni, hærra leiguverð yfir allan leigutímann. Það kemur vissulega fyrirsjáanleiki með því en hann er dýru verði keyptur.
Síðan var spurningin um eitt klikk í tölvunni, ég held að það sé reyndar aðeins meira heldur en bara eitt klikk en það er kannski nálægt því, og já, það er bara þannig að allt sem þú flækir óþarflega og er afturvirkt og hefur ákveðin sektarákvæði fólgin í sér letur fólk til framkvæmda. Það er ekki ég sem er að segja það heldur sýna reynslan og rannsóknir það. Það letur fólk til að setja íbúðir á leigu, til að fjárfesta og gera hitt og þetta og fyrir vikið fækkar íbúðum og þegar íbúðum fækkar þá minnkar framboð og þegar framboð minnkar þá hækkar verð. Ég veit að hv. þingmaður er sérstaklega góð manneskja og ég á aðeins erfitt með að vera í andsvörum hér við þessa góðu konu. En þetta er bara það sem ég er nokkuð viss um og takk fyrir, frú forseti, að leyfa mér að vera aðeins lengur (Forseti hringir.) þannig að ég mæri hv. þm. Jónínu Björk Óskarsdóttur. Það er bara staðan. Ég vil standa hér fyrir hönd leigjenda, sérstaklega ungra leigjenda og efnaminni, og vara við því að þetta komi til með að fækka húsnæði og hækka verð.