húsaleigulög.
Frú forseti. Ég vil byrja á að taka á ákveðinn hátt undir orð hv. þm. Jónínu Bjarkar Óskarsdóttur þegar hún segir að það sé ekki boðlegt að leiguverð hækki um 20.000–30.000 kr. á nokkurra mánaða fresti, alveg eins og það er ekki boðlegt heldur fyrir þá sem taka lán að slíkar hækkanir eigi sér stað. En við skulum vona að það sé ekki oft sem við stöndum frammi fyrir því. Hins vegar var ég að lesa greinargerðina og það er svo oft þannig að markmiðin virðast mjög góð en innihaldið er annars eðlis og, með leyfi forseta, langar mig aðeins að fara yfir markmiðið, sem er ágætt. Hér stendur:
„Með því eru lagðar til breytingar á húsaleigulögum sem hafa það að markmiði að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð.“
Hljómar allt mjög vel. Hver er ekki til í þetta? Ég held áfram:
„Frumvarpið hefur það jafnframt að markmiði að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með almennri skráningu leigusamninga og auknu gagnsæi um upplýsingar í leigusamningum.“
Það er gott að ríkisstjórnin vilji halda utan um gögn á einhverjum sviðum. En hvernig er þetta gert? Ég ætla að fá að vitna í umsögn Viðskiptaráðs. Þetta hljómar allt vel en eins og hv. þm. Jón Pétur Zimsen minntist á: Hver er raunveruleikinn? Hvað mun þetta frumvarp þýða raunverulega og hverjum mun það hjálpa? Það mun ekki hjálpa leigjendum, það er alveg á hreinu. Hér kemur fram í umsögn Viðskiptaráðs, með leyfi forseta:
„Að mati ráðsins felur frumvarpið í sér verulegar takmarkanir á eignarrétti og samningsfrelsi á leigumarkaði auk þess að stuðla að minna framboði“ — ég endurtek, minna framboði — „leiguhúsnæðis en ella. […]
Með frumvarpinu er lagt til að óheimilt verði að semja um að leigufjárhæð breytist á fyrstu 12 mánuðum leigutímans. Að mati Viðskiptaráðs felur tillagan í sér verulegar takmarkanir á samningsfrelsi og inngrip í eignarrétt. Viðskiptaráð dregur í efa að ákvæðið muni stuðla að auknum stöðugleika á leigumarkaði eins og stefnt er að.“
Þau draga tilganginn í efa. Ég held Viðskiptaráð sé búið að gera ágætisgreiningar á þessu.
„Viðskiptaráð dregur í efa að ákvæðið muni stuðla að auknum stöðugleika á leigumarkaði eins og stefnt er að. Þvert á móti telur ráðið líkur til þess að slíkt fyrirkomulag torveldi gerð skammtímaleigusamninga, sem eru hluti af nauðsynlegum sveigjanleika á leigumarkaði. Að mati Viðskiptaráðs þurfa eðlilegar og sanngjarnar heimildir leigusala til að aðlaga leiguverð í takt við breyttar aðstæður, t.d. verðbólgu eða viðhaldskostnað […].“
Eins og við komum inn á áðan þá getur þú ekki haft annan aðilann, leigusalann, með lán hjá banka sem er ekki með neinn fyrirsjáanleika, en hann má ekki vísitölutengja eða tengja þetta þegar hann er að leigja íbúðina áfram. Það er ekki markaður sem er neitt eðlilegt við. Ég held að það væri nær, eins og við töluðum um áðan, að geyma aðeins þetta frumvarp, sjá hvað verður í fyrirsjáanleika lána, sem er verið að taka fyrir núna, og geta þá kannski aðlagað þessa hlið og báðar hliðar að markaðnum.
Viðskiptaráð minnist á að það varaði við því áður, og það er reyndar raungerist, að í kjölfar fyrri lagabreytinga voru takmarkanir sem voru settar á efni samninga ekki til þess fallnar að ná markmiðum frumvarpsins sem um var rætt og þá var verið að tala um fjölgun langtímasamninga. Og hvað gerðist? Það leiddi þvert á móti til minni réttarverndar leigjenda. Þetta var nákvæmlega svipað dæmi. Viðskiptaráð varaði við því og það raungerist. Nú er ráðið aftur að vara við og ég skil ekki af hverju er ekki í neinu tekið tillit til þessarar umsagnar. Ég bið hv. þm. Jón Pétur Zimsen afsökunar, ég hélt að hann væri í atvinnuveganefnd. Það er kannski þannig að það er ekki alltaf tekið tillit til umsagna, en þess vegna langaði mig að gera þessu góð skil. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Inngrip stjórnvalda í leigusamninga sem ætlað er að halda leiguverði í skefjum hafa enn fremur fráhrindandi áhrif á leigusala. Með því að takmarka úrræði leigusala til að bregðast við kostnaðarhækkunum er aukinn hvati til þess að leiguhúsnæði verði fremur selt en leigt út.“
Við hv. þm. Jón Pétur Zimsen ræddum þetta aðeins áðan. Það er ekki tilgangur frumvarpsins að koma í veg fyrir að fólk vilji standa í útleigu á íbúðum til að fá fleiri í sölu. Það er ekki tilgangurinn en það mun sennilega verða afleiðingin. Við erum ánægð að fá fleiri íbúðir í sölu en það bitnar á þeim sem vilja eða þurfa að vera á leigumarkaði. Við viljum frekar hjálpa þeim að eignast húsnæði.
„Þau áhrif frumvarpsins geta falið í sér keðjuverkun þar sem fyrirséð er að eftirspurn eftir niðurgreiddu húsnæði muni aukast eftir því sem framboð leiguhúsnæðis á almennum markaði dregst saman.“
Vandamálið eykst. Svo er hér verið að tala um afturvirka skráningarskyldu allra leigusamninga. Þetta snýst ekki um einhverja einfalda skráningu. Það er bara gott og vel. En þetta er íþyngjandi, flókið og afturvirkt. Frumvarpið felur í sér útvíkkun á skráningarskyldu leigusamninganna, það felur í sér almenna skyldu leigusala til að skrá leigusamninga í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar að viðlögðum sektum. Það er alveg sýndur skilningur hjá Viðskiptaráði á að vilja afla upplýsinga og ég tek undir það, en það segir jafnframt að ef frumvarpið nær þrátt fyrir aðvaranir fram að ganga þá sé mikilvægt — nú heyrði ég hv. þm. Jónínu Óskarsdóttur segja áðan að þetta væri ekki íþyngjandi, en ráðið tekur hérna fram:
„Ef frumvarpið nær þrátt fyrir þetta fram að ganga er mikilvægt að skráning í leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði hvorki flókin né kostnaðarsöm. Skráningarskyldunni er enn fremur ætlað að gilda afturvirkt og mun því skyldan jafnframt taka til leigusamninga sem gerðir voru fyrir gildistöku laganna.“
Ég ítreka að auðvitað fylgja þessu sektarheimildir, eins og ég kom inn á áðan. Hér kemur einnig fram:
„Breytingar voru gerðar á húsaleigulögum árið 2023 þar sem upphaflega stóð til að lögfesta almenna skráningarskyldu. Horfið var frá upphaflegum áformum“ — ég vek athygli á þessu — „um almenna skráningarskyldu í meðferð þingsins“ — en núna var ekki horfið frá neinu slíku — „og var hún þess í stað takmörkuð við leigusala sem hafa atvinnu af útleigu íbúðarhúsnæðis. Litið var til sjónarmiða umsagnaraðila um að húsaleigulög og leigusamningar eru af einkaréttarlegum toga og fjalla um gagnkvæmar skyldur og réttindi aðila leigusamnings og löggjafinn mætti ekki ganga of langt gagnvart einstaklingum.“ — Þarna er gerður greinarmunur. — „Ráðið telur sérstakt að svo skömmu eftir lagabreytingu sé lögð fram tillaga sem felur í sér mun víðtækara inngrip.“
Ég vek athygli á að þetta er ansi löng umsögn og ég ákvað að gera bara ákveðnum þáttum sem við fórum yfir hérna áðan betri skil. Mig langaði, virðulegur forseti, að fá að enda á eftirfarandi og tek undir það:
„Mikilvægt er að stjórnvöld tryggi heilbrigt rekstrar- og samningsumhverfi fyrir leiguhúsnæði án þess að grafið sé undan þeim hvötum sem eru nauðsynlegir til að tryggja framboð slíks húsnæðis. Íþyngjandi kvaðir eins og þær sem áformaðar eru með frumvarpi þessu munu draga úr framboði leiguhúsnæðis og bitna þannig fyrst og fremst á leigjendum.“
Ég verð að endurtaka þetta, muni draga úr framboði leiguhúsnæðis og bitna þannig fyrst og fremst á leigjendum. Hér hristir hv. þingmaður höfuðið. Það kann að vera. Ég veit að hún vill vel. Ég vil sama markmið og hv. þingmaður, ég hugsa það. En þetta frumvarp mun ekki ná því. Ég verð að viðurkenna að ég tek undir þessa umsögn því að markmiðin eru góð en frumvarpið er þess eðlis að það mun draga úr framboði leiguhúsnæðis. Þannig er frumvarpið.
„Ef stjórnvöld vilja stuðla að heilbrigðari leigumarkaði væri bæði árangursríkast og hagkvæmast að aflétta íþyngjandi kvöðum sem lagðar hafa verið á leigusala á síðustu árum og hafa dregið úr framboði leiguhúsnæðis í stað enn fleiri skrefa í ranga átt líkt og hér er lagt til.“
Sú sem hér stendur tekur undir þetta.