157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[18:56]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir prýðisgóða ræðu og yfirferð yfir málið. Málflutningur hv. þingmanns rímaði töluvert mikið við þann málflutning sem ég var hér sjálfur með í ræðu áðan. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um og kannski fá álit hennar á tengist kannski því hverjar lausnirnar eru í þessu máli. Ég nefndi í minni ræðu að það þyrfti að einfalda kerfið, ekki flækja það. Það er hægt að byggja íbúðir sem fólk og ungt fólk vill búa í. Hér í höfuðborginni standa þúsundir íbúða að mig minnir örugglega tómar. Enginn getur keypt þær af því að þær kosta svo mikið eða henta ekki vegna þess að ungt fólk er venjulega margt hvert að stofna fjölskyldur og þarf að vera með bíla og það eru ekki bílastæði við margar þessara íbúða sem eru til sölu hér. Kannski er einfalda spurningin til hv. þingmanns: Hvaða lausnir sér hv. þingmaður til að koma til móts við húsnæðisvandann? Felast þær í að byggja meira eða hvernig ætti að byggja eða eitthvað slíkt? Það væri fróðlegt að fá sýn hv. þingmanns þannig að við séum líka að reyna að finna lausnir í pontu Alþingis en ekki bara að gagnrýna. Það væri fróðlegt að heyra hennar skoðun.