húsaleigulög.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni Jóni Pétri Zimsen fyrir risastóra spurningu. Hvaða lausnir sé ég? Númer eitt, tvö og þrjú, og það hefur oft verið sagt, en ég ætla bara að endurtaka það: Það þarf að byggja meira. Það þarf að byggja meira og það er líka nauðsynlegt að ná aðilum saman. Við þurfum ekki að vera í andstöðu, hvort sem vilji er til að kaupa eða leigja. Það þarf að leiða Samtök iðnaðarins, Viðskiptaráð, stjórnvöld og sveitarfélögin saman að borðinu, byggja hratt, skapa lausnir sem auðvelda fólki að kaupa, auðvelda fólki að byggja. Það er ekki gert með þessu frumvarpi sem núna liggur fyrir, þessari nýju CRR III-reglugerð þar sem eru kvaðir um að byggingaverktakar þurfi að eiga meira eigið fé en í dag þegar farið er af stað í framkvæmdir. Þetta vinnur ekki saman, markmiðin og aðgerðirnar. Ef við förum í aðgerðir sem eru hvetjandi til að byggja hratt án íþyngjandi kvaða á sama tíma myndi það hjálpa verulega og verða til verulegra bóta.