157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[19:00]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir afbragðsgott svar. Í raun hefði verið gott fyrir meiri hlutann að hripa niður þetta svar og fara að vinna í því einn, tveir og þrír. Það er töluvert betri leið heldur en birtist í þessu frumvarpi sem er núna til umræðu. Það sem mig langar að bera upp í seinna andsvari mínu er það sem ríkisstjórnin hyggst gera, þ.e. að skattleggja tekjur leigusala enn meira, og hvort hv. þingmaður telji að það auki eða minnki framboð íbúða. Svo er það sem hefur plagað mig svolítið en það er orðræða ráðherranna hér, t.d. í morgun. Hér kom hæstv. utanríkisráðherra og nefndi í pontu í stuttri ræðu sinni orðin samhent ríkisstjórn fjórum sinnum held ég, samhent ríkisstjórn. Mig langar að spyrja líka hv. þingmann hvort þessi orðræða og í raun þessar umbúðir, samhent ríkisstjórn, að hér þurfi allir að liggja — bara eins og vatn í potti. Það þarf að halda lokinu á, það má ekki sýna neina veikleika þrátt fyrir að allt sé sjóðandi undir í pottinum. Hér er mál sem Flokkur fólksins heldur á og hvort sem ríkisstjórnin er öll sátt innbyrðis eða ekki þá skal bara láta allt yfir sig ganga til að geta sagt þessi orð, samhent ríkisstjórn, í stað þess að þingmenn fylgi sinni eigin sannfæringu. Nú er ég ekki að segja að fólk sé það ekki en ég velti þessu fyrir mér miðað við orðræðuna sem dynur á okkur hér í þinginu, alls konar orðræðu sem er greinilega hönnuð af auglýsingastofum.