157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[19:02]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka spurninguna. Ég hef tekið eftir þessari orðræðu um samhenta ríkisstjórn. Ég skal viðurkenna að hún pirrar mig ekki mikið því að mér finnst þetta frekar innihaldslaust. Maður sér að þetta eru bara orð. Þau geta sagt þetta aftur og aftur en það er nokkuð ljóst að það eru ansi mörg mál sem þau eru ekki sammála um. Hér áttu að vera komin 80 og eitthvað mál en það eru komin 40 og eitthvað. Þau virðast náttúrlega ekki ná saman um hvað á að koma inn til þingsins. Þetta endar vonandi ekki eins og síðast, allt á síðustu stundu. Við erum kannski komin aðeins út fyrir efnið en þetta minnir svolítið á „andlitsbókina“. Þegar þú sérð að allir eru voðalega ánægðir, miklar myndir en það næsta sem við heyrum er að aðilar eru búnir að skilja. Það eru svolítið umbúðirnar hjá þessari ríkisstjórn, ekki innihaldið.

Hv. þingmaður kom áðan inn á varðandi það að byggja íbúðir. Ég ætla fyrst að svara því hvort ég haldi að þetta muni fækka eða fjölga íbúðum í leigu. Ég held að þetta muni fækka þeim og eins og hv. þm. Jón Pétur Zimsen sagði í ræðu sinni áðan yrði þetta til þess að fólk færi og fjárfesti annars staðar. Það er svo satt. Auðvitað fjárfesta einstaklingar og fyrirtæki í einhverju öðru sem er arðbærara. Í dag held ég að þetta sé fjárfesting sem er til að dreifa eggjunum. Við þurftum ekki að agnúast út í fólk því að það eru fáir, held ég, að stórgræða á að leigja út íbúðir en þetta er búið að ýta fólki enn lengra frá því. Sérstaklega í þessu vaxtaumhverfi er betra að liggja bara með peningana inni á bankabók. Svo held ég að hv. þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði að við ættum að byggja íbúðir sem fólk vill búa í.