157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[19:05]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég get ekki annað en gripið tækifærið þar sem ég átti ekki heimangengt við 2. umræðu um þetta ólánsmál sem hefur verið flutt hér í annað eða þriðja skiptið. Þetta er alveg gegnsýrt af forsjárhyggju og einhvers lags misskilningi á því hvernig hlutir ganga fyrir sig í raun. Ég ætla ekki að halda langa ræðu núna en vísa til þeirra sennilega þriggja ræðna sem ég hef haldið um þetta mál á fyrri stigum þar sem ég reyni að ramma inn þessi sjónarmið sem hér eru helst undir. Ég vil þó nefna það sérstaklega, og taka undir það sem kom fram í orðum hv. þm. Jóns Péturs Zimsens áðan, er varðar þennan grundvallarmisskilning sem kemur fram í því að þessi regla, að binda leigufjárhæð fyrstu 12 mánuðina, sé leigutaka sérstaklega til góðs. Það eru einhver hugsanafeill þarna hjá fyrirsvarsmönnum þessa máls.

Þetta mun í fyrsta lagi verða þess valdandi að upphafstala leigusamnings er hærri en annars hefði orðið. Það þýðir að komi til þess, sem ég held að flestir hafi vonast til í raun þegar fyrsti samningurinn var gerður, að þetta verði langtímaleiga, það eru hagsmunir bæði leigusala og leigutaka að svo megi verða, er grunntalan hærri en annars hefði orðið. Það er ekki í neinu samhengi til hagsbóta fyrir leigutaka, ekki neinu, svo því sé haldið til haga. Það er ekki öruggt að það verði hægt að festa hönd á þessu þegar fram í sækir. En raunheimar leiða þetta fram, að leigusali mun alltaf taka tillit til þessa þegar er búið að banna vísitölubindingu fyrstu 12 mánuðina.

Síðan langar mig að gjalda varhuga enn einu sinni við því að þessi skráningarkvöð sé viðhöfð. Það er alveg ljóst, held ég, að það mikla magn leigusamninga sem er þinglýst samkvæmt núverandi regluverki, og er síðan skráð frá aðilum sem hafa það að atvinnustarfsemi að leigja út íbúðir, allur sá massi leigusamninga er alveg nægjanleg vísbending um það með hvaða hætti verð og aðrir skilmálar eru að þróast. Ég held að við ættum ekki að bæta enn í kraðakið í skriffinnsku frá því sem þegar er orðið.

En þetta eru nú þessi meginatriði sem ég vildi halda til haga. Ég er sannfærður um að þetta mun fækka íbúðum á leigumarkaði en ekki fjölga þeim og gera stöðu leigjenda verri en annars hefði orðið. En það er kannski bara meira af því sama sem birtist okkur í fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem birtur var núna fyrir nokkrum dögum síðan. Mér þykir nú alltaf hálfkauðslegt þegar einhverjir pakkar eru kynntir. Fyrri ríkisstjórn komst upp á lagið með það í Covid-tímabilinu að segja að það kæmu fleiri pakkar þegar menn voru berskjaldaðir á einhverjum sviðum vandans. Það er það sem blasir við eins og staðan er núna. Þessar meldingar um að hér komi annar húsnæðispakki á nýju ári eru auðvitað fyrst og fremst til komnar vegna þess að ríkisstjórnin áttar sig á því að það er ekki verið að stíga inn í þann bráðavanda sem blasir við öllum. Ég læt þetta duga í bili.