stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar. Með þessu frumvarpi er lagt til að sett verði ný heildarlög um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar og breyting verði gerð á ýmsum lögum á sviði fjármálaþjónustu til samræmis. Þá er frumvarpinu ætlað að innleiða í landsrétt ákvæði svokallaðrar DORA-reglugerðar og DORA-tilskipunar sem stafar frá Evrópuþinginu og ráðinu og fjalla um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd með áliti nefndarinnar til 2. umræðu 19 júní sl. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarpið sé nú endurflutt að mestu óbreytt. Breytingarnar séu í samræmi við breytingartillögur nefndarinnar í fyrrgreindu nefndaráliti. Nefndin vísar til fyrri umfjöllunar sinnar sem fram kom í áðurnefndu áliti á síðasta löggjafarþingi en telur þó ástæðu til að árétta nokkur atriði. Í fyrsta lagi vill nefndin undirstrika meðalhófsreglu sem finna má í 4. gr. DORA-reglugerðarinnar, sem kveður á um að aðilum sem falla undir DORA-reglugerðina beri að aðlaga kröfur hennar að stærð og eðli rekstrarins. Það leiðir til þess að vægari kröfur yrðu gerðar til minni fyrirtækja en þeirra sem eru stærri og umfangsmeiri. Jafnframt er gert ráð fyrir því í 16. gr. DORA-reglugerðarinnar að einfaldur áhættustýringarrammi gildi fyrir tilgreinda smærri aðila á fjármálamarkaði. Sama skylda um beitingu meðalhófs er lögð á eftirlitsaðila í 4. gr. reglugerðarinnar. Þeim ber þar af leiðandi að taka tillit til m.a. stærðar fyrirtækja, eðlis og umfangs þeirra við framkvæmd lögbundins eftirlits. Markmið DORA-reglugerðarinnar er að efla stafrænt öryggi og rekstrarþol á fjármálamarkaði með skýrum og samræmdum kröfum um áhættustýringu og viðbúnað. Hingað til hafa þessar kröfur hvorki verið ítarlega útfærðar né samræmdar. Fjöldi misstórra og misumfangsmikilla fyrirtækja með ólíka starfsemi þarf þar af leiðandi að geta beitt DORA-reglugerðinni til samræmis við t.d. 4. og 16. gr. DORA-reglugerðarinnar og tekur orðalag frumvarpsins og sjálfrar reglugerðarinnar mið af því. Samræmdar reglur geta jafnframt haft jákvæð áhrif á aðila á fjármálamarkaði. Þær geta aukið tiltrú á fjármálakerfið og aukið stöðugleika þess. Þá kunna þær að draga úr flækjustigi í framkvæmd og auka samleitni í eftirliti. Sömuleiðis gætu þær dregið úr kostnaði fyrir aðila sem starfa milli landa innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Í öðru lagi vill nefndin víkja að hámarksfjárhæð stjórnvaldssekta samkvæmt frumvarpinu en um þetta hefur verið fjallað í umsögnum til nefndarinnar. Meginmarkmið viðurlagaákvæða er að hafa varnaðaráhrif. Þá gætu alvarlegustu brot á þeim reglum sem um er að ræða valdið gríðarlegu tjóni á fjármálamarkaði. Nefndin tekur þó fram að ávallt þurfi að hafa í huga meðalhófsregluna við beitingu stjórnvaldssekta. Jafnframt er brýnt að horfa til framkvæmdar eftirlits annarra eftirlitsaðila á Evrópska efnahagssvæðinu og að Fjármálaeftirlitið hér á landi taki mið af því og varist til að mynda að ganga lengra.
Í þriðja lagi vill nefndin taka undir að fræðsla og aðgengilegar upplýsingar um kröfur og skyldur þeirra sem falla undir löggjöf um starfrænan viðnámsþrótt séu mikilvægar. Mikilvægt er að upplýsingagjöf til íslenskra aðila á fjármálamarkaði sé með svipuðu móti og annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu.
Að lokum komu fram, í tveimur umsögnum sem nefndinni bárust, ábendingar sem varða 11. gr. frumvarpsins. Í álitinu er rakið að nefndin teldi ekki tilefni til að leggja til breytingu á ákvæðinu.
Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt. Undir nefndarálitið rita auk þess sem hér stendur hv. þingmenn Anna María Jónsdóttir, Elín Íris Fanndal, Pawel Bartoszek, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Tómas Þór Þórðarson og Vilhjálmur Árnason.
Við fengum þetta mál inn til okkar í vor og megnið af vinnunni var unnið þá, þannig að þetta er endurflutt mál. Það hefur verið mikill samhljómur í nefndinni um málið og þeir umsagnaraðilar sem sendu inn umsögn um málið hafa verið mjög jákvæðir gagnvart því. Það komu umsagnir frá Byggðastofnun, Lánasjóði sveitarfélaga og Náttúruhamfaratryggingu Íslands þar sem þeir töldu sig ekki eiga heima undir DORA-reglugerðinni þrátt fyrir að Seðlabankinn mæltist til þess. Nefndin ákvað að hlusta á sjónarmið þessara aðila sem eru þá undanskildir DORA-reglugerðinni vegna smæðar sinnar, en um er að ræða afar smá fjármálafyrirtæki.
Önnur breyting sem er gerð á reglugerðinni er að lífeyrissjóðir landsmanna munu nú falla undir þessa DORA-reglugerð en það er að þeirra eigin ósk. Lífeyrissjóðakerfið er, eins og við þekkjum, gríðarlega stórt og þau telja það vera jákvætt fyrir sinn rekstur að falla undir þessa reglugerð.
Heimurinn er orðinn mjög flókinn þegar kemur að stafrænum málum og það er mikilvægt fyrir fjármálamarkaðinn og þá aðila sem starfa á honum að tryggja rekstraröryggi og samkeppnishæfni sína og er DORA-reglugerðin einn hluti af því. Það er eitt sem við þurfum að hugsa sem hér stöndum sem er að við þurfum auðvitað að fræða og búa til þekkingu á þessu sviði, af því að þessi angi heimsins er alltaf að verða flóknari og flóknari. Við sáum bara í síðustu viku að það gerðist mikið á fjármálamörkuðum þegar menn nýttu sér reiknivillu hjá Reiknistofu bankanna. Ég er ekki að segja að DORA-reglugerðin myndi endilega koma í veg fyrir þann glæp sem þar var framinn en það er alla vega samdóma álit þeirra sem sendu okkur umsagnir og starfa á þessum mörkuðum að þessi reglugerð sé mjög jákvæð og muni styrkja fjármálamarkaðinn.
Eins og ég sagði áðan var mjög mikill samhljómur í nefndinni og góð vinna og ég vil fá að þakka nefndarmönnum fyrir vinnuna sem lögð var í málið.