stimpilgjald.
Virðulegur forseti. Já, ég hef miklar upplýsingar handa hv. þingmanni um það af hverju það hefur ekki tekist að fá neina ríkisstjórn til að samþykkja þetta á undanförnum árum. Það eru nokkrar ástæður fyrir því og kannski fyrst og fremst forgangsröðun þeirra skattalækkana sem hafa verið, sem hafa verið fjölmargar á undanförnum árum. Það er bara það sem við glímum við og ræddum nú síðast í morgun í hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Eins furðulegt og það er að þegar skattar eru lækkaðir þá er eins og það sé algjörlega bannað að reikna hin raunverulegu efnahagslegu áhrif sem það hefur að lækka skattana. Það þarf alltaf að reikna þá til tekjulækkunar fyrir ríkissjóð og fjármálaráðuneytið hefur aldrei viljað gera annað en reikna þetta frumvarp til tekjulækkunar. Þá var erfitt að koma því að þegar var verið að lækka virðisaukaskatt, tekjuskatt, verðtryggja persónuafsláttinn og draga úr skerðingum hjá eldri borgurum og öryrkjum. Svona get ég haldið lengi áfram með hinar ýmsu skattabreytingar eins og að bæta inn nýju lægsta tekjuskattsþrepi til að lækka tekjuskatt einstaklinga og fleira og á meðan fasteignamarkaður var á fleygiferð, fasteignaverð að hækka, þá bara fékkst ekki í meiri hlutanum forgangsröðun fyrir þessum skatti út af því hvernig fjármálaráðuneytið reiknar kostnaðinn af því. Eins og þegar við lækkuðum erfðafjárskattinn þá var það reiknað til tekjulækkunar en tekjur af erfðafjárskatti hafa alltaf verið auknar eftir að hann hefur verið lækkaður.