157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stimpilgjald.

32. mál
[19:31]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég tek undir að það hefur oft og tíðum hreinlega tryllt mig með hvaða hætti fjármálaráðuneytið hefur nálgast hinar ýmsu skattabreytingar, sérstaklega koma upp í hugann áhrif af því að liðka fyrir um að aldraðir og öryrkjar vinni frekar en að gera það ekki og heildaráhrifin og mat á heildaráhrifum. Ég tek undir að þessi nálgun fjármálaráðuneytisins hefur verið skynseminni mótdræg í mörgum málum. En þá kemur aftur að því að það þarf væntanlega að kalla fram breytingar á lögum um opinber fjármál til að menn fari að gera þetta í tengslum við raunheima. Þarf ekki eitthvert slíkt mál að koma fram samhliða til að þetta stoppi ekki alltaf á þessari sömu fyrirstöðu? Vissulega erum við tímabundið í því ástandi núna að raunverð og mögulega stutt í að nafnverð fasteigna fari niður en ef við horfum til lengri tíma þá er nú líklegra að sá taktur haldist að einhverju marki á svipuðu róli og verið hefur til lengri tíma.

En spurning mín til hv. þingmanns í seinna andsvari er: Með þessum rökum, að þetta sé fyrirstaða í fjármálaráðuneytinu hverju sinni, þarf þá ekki samhangandi aðra aðgerð sem væri væntanlega tillaga að breytingu á lögum um opinber fjármál eða einhver önnur ef hv. þingmaður hefur hugsað þá lausn?