157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stimpilgjald.

32. mál
[19:33]
Horfa

Flm. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég er sammála því að það þarf að verða alla vega breyting í það minnsta en hvort sú breyting kalli á lagabreytingu á lögum um opinber fjármál — auðvitað getur lagabreyting á lögum um opinber fjármál, þar sem segir hvernig eigi að reikna þetta, hjálpað og tryggt það en miðað við hvernig hægt er að rökstyðja hinar ýmsu breytingar og reikna í fjárlögum þá er alveg hægt að reikna þetta svipað myndi ég halda. Sú viðhorfsbreyting þarf klárlega að vera og ég sagði í ræðu minni áðan að ég væri aðeins bjartsýnni núna en oft áður um að þetta myndi eiga meiri möguleika á að komast í gegn núna þar sem verið er að hækka alla skatta.

Hitt sem ég lýsti er að þá var verið að lækka alla skatta og núna er fasteignaverð einmitt frekar að standa í stað eða jafnvel að fara að falla, alla vega raunverðið, og það er algjört frost, í það minnsta hjá vissum hópi alla vega, á fasteignamarkaðnum um þessar mundir. Svo er verið að íþyngja stórum hluta af kaupendum líka í gegnum CRR III og margt annað. Núverandi ríkisstjórn er að kynna hér húsnæðispakka eftir húsnæðispakka og ég býð þeim bara þetta mál „gratis“ inn í húsnæðispakkann sinn. Vonandi taka þau það upp. Ég yrði ekkert hörundsár þó að þau myndu stela málinu, það skiptir ekki máli, bara að það klárist fyrir þegna þessa lands.