157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

endurskoðun laga um virðisaukaskatt.

[15:45]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Fátt ber betur vitni um samstöðu og fórnfýsi landsmanna en störf björgunarsveita landsins. Um land allt starfa nú 93 björgunarsveitir með rúmlega 3.500 sjálfboðaliðum sem standa vaktina allan sólarhringinn, allt árið um kring fyrir okkur hin. Björgunarsveitirnar eru burðarás í öryggiskerfi þjóðarinnar og sinna gríðarlega ábyrgðarfullu starfi en þrátt fyrir að vera hluti almannavarna ríkisins byggist rekstur þeirra alfarið á gjöfum, styrkjum eða fjáröflun. Um þessar mundir standa björgunarsveitirnar vaktina við sölu neyðarkallsins og ég vona að flest okkar hafi sýnt stuðning í verki með kaupum á neyðarkallinum í ár, sem er til minningar um hann Sigurð Kristófer sem helgaði líf sitt því að hjálpa öðrum en lést í fyrra í hörmulegu slysi við björgunaræfingu í Tungufljóti.

Björgunarsveitirnar sækja árlega um undanþágu til að geta selt neyðarkallinn án álagningar virðisaukaskatts. Sú álagningarundanþága gildir í fimm daga og þegar þeir dagar eru liðnir þarf að greiða virðisaukaskatt af seldum neyðarköllum. Rétt fyrir áramót hefst stærsta fjáröflun björgunarsveitanna, sjálf flugeldasalan, en hún skilar sveitunum allt að 60–70% af þeim tekjum sem sveitirnar afla sjálfar og hjá sumum sveitum getur hlutfallið orðið allt að 90%. Allt fer þetta fram í umsjón sjálfboðaliða um land allt án þess að nokkurn launakostnað sé að finna. En þrátt fyrir þessi ómetanlegu verðmæti renna um 20% af tekjum af sölu flugelda, svo dæmi sé tekið, til ríkissjóðs í formi skatta og gjalda, sem sagt: Af þeim fjármunum sem sjálfboðaliðar safna til að tryggja öryggi okkar landsmanna rennur fimmtungur í ríkissjóð í stað þess að nýtast óskert til björgunar- og öryggisstarfa.

Í því ljósi vil ég spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort hann sé reiðubúinn til þess að láta fara fram einhvers konar endurskoðun laga um virðisaukaskatt (Forseti hringir.) varðandi starfsemi viðurkenndra heildarsamtaka björgunarsveita á borð við Slysavarnafélag Landsbjargar, að það falli ekki lengur undir skattskylda veltu.