endurskoðun laga um virðisaukaskatt.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að vekja hér máls á ákaflega mikilvægu málefni sem eru málefni björgunarsveitanna sem auðvitað standa okkur öllum mjög nærri. Ljóst er að sú þrotlausa og óeigingjarna vinna sem björgunarsveitirnar og liðsmenn þeirra eru tilbúin að sinna í þágu íslensks samfélags er mjög til eftirbreytni og við erum heppin að búa að þessu starfi. Lengi hefur verið rætt um það með hvaða hætti þetta skuli fjármagnað. Ég tek undir með hv. þingmanni að svo ég taki nú sjálfan mig sem dæmi kaupi ég bæði af þeim búnað til að fagna áramótum þrátt fyrir mótmæli sumra á heimilinu, sem og er þar bakhjarl og kaupi að sjálfsögðu neyðarkallinn. Það er eitthvað fallegt við þessa fjármögnunarleið sem er einhvern veginn framkvæmd í sátt við þjóðina þar sem hún leggur til baka til sveitanna til að verðlauna þær fyrir þeirra óeigingjörnu störf.
Fyrir liggur á þingmálaskrá að það mun koma til endurskoðunar á lögum um virðisaukaskatt. Undirbúningur er í fjármálaráðuneytinu að þeirri vinnu. Hvort það sé síðan heppilegt að koma þessum stuðningi fyrir þar er umræða sem við þurfum að taka í þessum sal. Það er auðvitað á einhvern hátt sérstakt að stuðningur við þessa vinnu felist í skattafslætti fremur en einhvers konar öðru framlagi. Á því eru ákveðnir annmarkar sem t.d. krefjast þess að björgunarsveitirnar séu með umfangsmikla virðisaukaskattskylda starfsemi. Þetta er samtal sem ég er ekki hræddur við. Ég ítreka að ég held að það sé alger samstaða í þessum sal um mikilvægi björgunarsveitanna og mikilvægi þess að við ræðum fjármögnun þeirra. Hvort virðisaukaskattskerfið er heppilegt skal ósagt látið.