157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

endurskoðun laga um virðisaukaskatt.

[15:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðari spurninguna. Ég hef rekist á það nokkrum sinnum í þessum sal þegar ég tjái mig að ég fæ spurningar í kjölfarið sem benda eindregið til þess að það sem ég sagði rétt þar á undan hafi alls ekki skilist. Hugsa ég þá svona í hálfkæringi að nemendur Háskóla Íslands séu heppnir að ég standi hér frekar en þar af því að ég fæ tækifæri til að endurtaka það sem ég hef þegar sagt. [Hlátur í þingsal.] Það sem ég var að segja var að ég tel alls ekki einsýnt að það sé heppileg leið til að styrkja starf björgunarsveitanna að fela stuðning við þær inni í undanþágum í virðisaukaskattskerfinu. Það er umræða sem við þurfum að taka og ég veiti það svar þá aftur hér og vona að það sé skýrara í þetta skipti.