framlög í Hafnabótasjóð.
Virðulegur forseti. Hafnir Íslands gegna lykilhlutverki í efnahagskerfi landsins og ég held að í þessum sal þurfi ekki að hafa mörg orð um það. Í uppbyggingu hafna allt í kringum landið hefur Hafnabótasjóður verið gríðarlega mikilvægur í uppbyggingu hafnarmannvirkja. Nú heyrast áhyggjur sveitarstjórnarmanna að í nýrri samgönguáætlun, sem er í smíðum hjá hæstv. innviðaráðherra og átti að koma í október en er búið að boða komu núna í nóvember, standi til að lækka fjárframlög í Hafnabótasjóð um 300 milljónir og láta sveitarfélögin borga 60% kostnaðarhlutdeild í staðinn fyrir 40%. Því vil ég spyrja hæstv. innviðaráðherra og þetta er í rauninni bara já eða nei spurning: Er það rétt að þetta standi til í nýrri samgönguáætlun, að fara í þennan niðurskurð og skipta og breyta kostnaðarhlutfallinu?