157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

framlög í Hafnabótasjóð.

[15:53]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni um að hafnir landsins gegna lykilhlutverki í uppbyggingu landsins og hafa gert það frá landnámi. Byggðaþróun hefur einfaldlega verið í kringum hafnir í kringum landið — grundvallaratriði. Reykjavík er höfuðborg landsins út af frábærri höfn. Og varðandi já og nei-spurninguna þá eru Covid-framlögin, ef ég skil það rétt, að detta út þannig að það verður minna til aflögu ef ég man rétt.

Varðandi það hvort til standi að lækka framlögin þá er ég með það í skoðun núna. Ég fékk minnisblað í morgun frá Vegagerðinni af því að það sem er undir er að við þurfum að nýta peningana vel. Það eru tvær hafnir landsins sem standa mjög vel, Faxaflóahafnir og hafnirnar í byggðarlagi hv. þingmanns, í Fjarðabyggð. Þær standa gríðarlega vel. Það eru aðrar hafnir að koma inn sem standa líka vel út af ferðaþjónustu og öðru slíku. Þá er spurningin: Hversu mikið á ríkissjóður að styrkja hafnaruppbyggingu þar? Það er stóra spurningin. Það er spurning hvernig við nýtum fjármagnið. Eigum við að nýta það til hafna? Faxaflóahafnir fá ekkert frá ríkinu, ekki neitt. Það er sjálfbært fyrirtæki. Hafnir sem eru kannski að verða sjálfbærar eða nálægt því að verða sjálfbærar, það er spurning hversu hátt framlagið á að vera til þeirra.