157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

framlög í Hafnabótasjóð.

[15:55]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegi forseti. Það virðist vera sem áhyggjur sveitarstjórnarmanna um að það eigi að lækka framlögin í Hafnabótasjóð séu á rökum reistar. Við erum t.d. með milljarðafjárfestingar fram undan í höfninni, t.d. í Þorlákshöfn, þar sem verið er að reyna að byggja upp hafnaraðstöðu til að koma til móts við Smyril Line sem er að byggja skip og fara úr 140 m skipum yfir í 200 m skip. Eru þetta skilaboðin frá hæstv. ríkisstjórn þegar kemur að því að við ætlum að auka hér öryggis- og varnarmál? Einn stærsti hluti í okkar öryggis- og varnarmálum er uppbygging hafna og við ætlum að lækka framlögin til hafnanna. Hvernig fer saman hljóð og mynd í skilaboðum hæstv. ríkisstjórnar ef það á að lækka framlögin í Hafnabótasjóð, minnka fjárfestingar í höfnum og auka kostnað sveitarfélaganna og svo er talað um mikilvægi þess að byggja upp öryggis- og varnarmannvirki?