framlög í Hafnabótasjóð.
Virðulegur forseti. Ég get bara endurtekið það sem ég sagði áðan: Covid-framlögin eru að falla niður. Það er bara svo einfalt. Það þýðir að það er minna til skiptanna og við erum bundin af fjárlögum og fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030. Þannig er það. Það er búin að vera frábær uppbygging í Þorlákshöfn, frábær uppbygging. Þetta er orðin mjög öflug höfn og á eftir að eflast enn þá meira. Sama er um aðrar hafnir sem hafa eflst mikið út af ferðaþjónustu og öðrum þáttum. Og ef það eru sjálfbærar hafnir í landinu þá á ríkissjóður ekki að vera að koma með peninga inn í þær. Það er mín skoðun. Ég tel að hafnir landsins eigi að vera öflug fyrirtæki í landinu sem víðast og þá þarf ríkissjóður ekki að koma inn. Við eigum að nýta peningana vel og styrkja þær hafnir sem virkilega þarf að styrkja, aðrar ekki.