157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

mat á aðgerðum á Reykjanesi.

[16:04]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Undanfarin misseri höfum við staðið frammi fyrir gríðarlegum áskorunum á Reykjanesi sem þingheimur þekkir vel. Náttúruhamfarir hafa verið þar um töluvert skeið og hafa kallað á umfangsmiklar viðbragðsaðgerðir almannavarna, aðgerðir eins og að byggja varnargarða, hraunkæling, varahitaveita o.fl. Það hefur verið ómetanlegt fyrir íbúa á Suðurnesjum, alla 30.000 talsins, en einnig varið byggðina í Grindavík og alþjóðaflugvöllinn og svo má lengi telja. Svo vill til að það eru tvö ár síðan við þurftum að rýma Grindavík. Ég man mjög vel eftir þeim degi og hann er örugglega mörgum Íslendingum í fersku minni, ekki síst Grindvíkingum sjálfum. Í vikunni sem leið bárust fréttir af því að fjármálaráðherra hefði óskað eftir mati á aðgerðum almannavarna á Reykjanesi og þeim verðmætum sem þær björguðu. Í tilkynningu kemur fram að ríkissjóður telji eðlilegt að skoða hvort rétt sé að þeir aðilar sem hafi haft hagsmuni á svæðinu beri hluta kostnaðar vegna aðgerðanna. Þetta sætir mikilli furðu, virðulegi forseti. Er hæstv. fjármálaráðherra að fara í rukkunarleiðangur á Reykjanesi á meðan atburðirnir eru enn þá í gangi? Það gæti auðvitað byrjað að gjósa seinni partinn eða í kvöld á Reykjanesi.

Ég spyr: Er það virkilega ætlun hæstv. fjármálaráðherra í þessari vegferð að óska eftir upplýsingum frá öllum fyrirtækjum sem nutu góðs af forvarnaaðgerðum almannavarna í neyðarástandi? Hvaða fyrirtæki falla þar undir? Eru það fyrirtæki í Grindavík? Eru það fyrirtæki á Keflavíkurflugvelli? Mega fyrirtæki í landinu sem varin hafa verið af snjóflóðavarnargörðum eða notið stuðnings af aðgerðum stjórnvalda í heimsfaraldri búast við sömu meðferð?