157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

mat á aðgerðum á Reykjanesi.

[16:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni fyrir hans síðari spurningu. Ég get staðfest að slíkt lagalegt mat liggur fyrir, mjög ítarleg greinargerð ytri sérfræðinga á sviði þessa málaflokks, og get jafnframt upplýst um að þegar kemur að mati á því tjóni sem afstýrt var með varnargörðum þá snýr það fyrst og fremst að þeirri atvinnustarfsemi sem er beinlínis á svæðinu og var varin af görðunum sjálfum. Ég ítreka aftur að hér er verið að gæta langtímahagsmuna íslensku þjóðarinnar. Það er mitt hlutverk sem ég ræki.