húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Já, það er búið að fara í gegnum þetta mál í hv. velferðarnefnd, þar sem ég á sæti, nokkuð ítarlega og umsagnaraðilar hafa komið til fundar. Það er sláandi hve miklar áhyggjur margir þeirra hafa af þeim íþyngjandi kvöðum sem er verið að leggja á leigusala, eins og með þessari afturvirku skráningarskyldu í grunn HMS. Hingað til hafa leigusamningar sem fólk gerir sín á milli talist nægir en nú er verið að auka þessa skráningarskyldu og það stríðir gegn persónufrelsi að mati okkar sem standa að því áliti sem minni hlutinn í velferðarnefnd hefur sent frá sér og ekki síður þetta sem hér hefur verið komið inn á, að nú eigi að leggja bann við því að að hægt sé að vísitölutengja og hækka leiguverð fyrstu 12 mánuðina. Það eru miklar áhyggjur af því t.d. hjá námsmönnum og öðrum að þetta muni hafa áhrif á leiguverð í upphafi (Forseti hringir.) og því sé þetta hamlandi og íþyngjandi, bæði skráningarskyldan sem á nú að vera hægt að sekta vegna sé henni ekki fylgt (Forseti hringir.) og svo þessi kvöð um að ekki megi hækka fyrstu 12 mánuðina. Þetta er því að hafa öfug áhrif við það sem ég tel að tilgangurinn hafi átt að vera.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að það er eingöngu ein mínúta til ráðstöfunar undir þessum lið, um atkvæðagreiðsluna.)