157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[16:24]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um þetta ágæta mál. Einkum tvennt er markmið þessa frumvarps, annars vegar skráning leigusamninga, sem ég held að sé afar mikilvægt atriði, sérstaklega til þess að varpa ljósi á umfang þess markaðar sem við erum að horfa á, þ.e. leigumarkaðinn. Með skrásetningarskyldu samninga fást mjög mikilsverðar upplýsingar um leigumarkaðinn. Það er grundvallaratriði.

Varðandi það að ekki sé heimilt að hækka leigu fyrstu 12 mánuði samnings er hér verið að koma til móts við breytingu sem fyrir nokkrum árum síðan var reynt að gera, að þetta væri ekki hægt. Breytingin fólst í að ekki mætti hækka á tímabundnum samningum til 12 mánaða. Þá urðu náttúrlega samningar til 13 mánaða þannig að það náðist ekki. Þetta markmið næst nú með því að banna þetta á fyrstu 12 mánuðunum. Það er vissulega þannig að það mun sennilega verða verðbólguálag á samningunum. Það er kannski ekki gott. Hins vegar er það þannig að við náum markmiðinu sem að var stefnt.