húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Þetta mál er hræðilegt skrifræðismál, alveg hræðilegt og eingöngu til þess fallið að að renna stoðum undir eftirlitsþjóðfélagið. Það kemur á óvart að hæstv. ríkisstjórn skuli pikka þetta mál upp af öllum málum fyrri ríkisstjórnar, að þá skuli það vera þetta mál. Þetta mál er til þess fallið og ber þess merki að höfundarnir hafa oftrú á ofgnótt upplýsinga, skráningarskyldu eins og það er nefnt hér, að það komi fram einhverjar mikilsverðar upplýsingar. Ég spái því að þær afleiðingar sem þetta frumvarp muni hafa, hafi það einhverjar, verði til þess að fækka íbúðum á almennum markaði; íbúðir sem áður hafa verið leigðar til vandalausra fari frekar í nýtingu fyrir vandamenn og ættingja eða að öðrum kosti hækki leiga. Það er full ástæða til að greiða þessu máli ekki atkvæði, vera á rauðum takka við þessa atkvæðagreiðslu.