157. löggjafarþing — 30. fundur, 10. nóv. 2025.
húsaleigulög.
108. mál
Frú forseti. Ríkisstjórnin sýnir sitt rétta andlit. Það kemur svo glögglega fram í þessu máli. Hér er um að ræða mál sem sýnir stæka forsjárhyggju. Þarna er lögð til skráningarskylda allra leigusamninga. Þetta skerðir persónufrelsi, fer gegn samningsfrelsi aðila á markaði, getur orðið afturvirkt að hluta og getur samkvæmt áliti margra umsagnaraðila haft þveröfug áhrif, til hækkunar leiguverðs en ekki lækkunar. Stæk forsjárhyggja.
Frú forseti. Ég segi nei.