157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[16:27]
Horfa

Jónína Björk Óskarsdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég á ekki til eitt einasta orð yfir þessum þingheimi eða þeim sem hafa talað hérna. Það er talað daginn út og daginn inn um öll þau mál sem hafa komið inn hingað, um að okkur vanti skráningar, meiri útreikninga og meira þetta og meira hitt. Hér er einvörðungu verið að fara fram á það að leiguíbúðir séu skráðar svo hægt sé að halda utan um það. Stæk forsjárhyggja, sagði einn hv. þingmaður. Ég spyr mig fyrir hverju forsjárhyggjan sé. Þetta er svo einfalt mál. Fólk hefur áhyggjur af því að þetta sé svo erfitt og mikil fyrirhöfn. Þetta er að fara inn í tölvuna og opna vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og ýta á hnapp til að skrá þetta inn. Þetta er bara mjög auðvelt og einfalt. (Forseti hringir.) Að tala um að þessi og hinn hafi miklar áhyggjur af því að þetta falli út — (Forseti hringir.) það tel ég ekki. Talið við lögregluna og slökkviliðið, þar er þetta sagt bráðnauðsynlegt.