húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Að nálgast þetta mál með einhverjum útúrsnúningum finnst mér vera skrýtið. Að mínu mati er skráningarskyldan það sem vantaði inn í húsaleigulögin. Hún er það sem tekið var út síðast til að þjóna einhverjum hagsmunaaðilum úti í bæ. Hver er tilgangurinn með skráningarskyldu? Hann er auðvitað sá að fólk í vanda sem neyðist inn á leigumarkað geti fundið eitthvert viðmiðunarverð á húsaleigu til þess að einhverjir aðilar séu ekki að okra á því. Það er verið að búa til eðlilegan, heilbrigðan markað fyrir fólk sem þarf að vera á leigumarkaði til að átta sig á því hvert eðlilegt verð sé fyrir húsaleigu á Íslandi, þannig að ég fagna þessu mjög.