157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[16:31]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Útreikningum neysluvísitölu var breytt nýlega þar sem vísitöluútreikningar taka nú mið af greiddri húsaleigu. Það er talið að fjöldi skráðra leigusamninga sé einungis um þriðjungur af húsnæði í útleigu og eru þær tölur enn nokkuð á reiki. Allir eru sammála um að vanmatið sé umtalsvert. Það er auðvitað mjög mikilvægt bæði fyrir þingið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að hafa réttar upplýsingar og ítarlegar upplýsingar til að við vitum betur um umfang leigumarkaðarins og stærð hans og sömuleiðis hvernig við í þinginu getum brugðist við. Að halda því fram að þetta geti mögulega hækkað húsaleiguverð — við sem höfum fylgst með þróun leiguverðs í gegnum tíðina vitum að kostnaður eða skráningarskylda hefur ekkert að gera með (Forseti hringir.) þróun leiguverðs síðustu ár. Þar ráða kostnaðarhækkanir og vaxtastig fyrst og fremst. Markaðurinn hefur algerlega ráðið för, (Forseti hringir.) ekki skráningarskylda og leigusamningar.