húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Hér kristallast sá pólitíski munur sem er í þingsal, að hér eru sumir flokkar og hæstv. ríkisstjórn sem trúa því að hið alsjáandi auga ríkisins muni redda öllum málum; hér séu greiningar og að það sé gott að hafa upplýsingar. Ég man að í Ráðhúsinu í Reykjavík var eitt sinn gefið út plagg um hversu margir rakkar og hversu margar tíkur væru í Reykjavík og hvert hlutfallið væri þar á milli. Hvað sögðu þessar upplýsingar okkur? Ekki neitt, nema um hlutfall milli rakka og tíka í Reykjavík. Það sama á við hér. Það er verið að skylda fólk til að fara í eitthvert miðlægt kerfi, safna einhverjum upplýsingum, gera kerfið þyngra. Hverjum mun þetta koma niður á? Þetta mun koma niður á leigjendum.