húsaleigulög.
Frú forseti. Ég finn mig knúna til að koma hér upp vegna stóryrða og gífuryrða um eftirlitssamfélag. Við fylgjumst hér með heilmiklu til þess einmitt að taka góðar ákvarðanir í þessum sal. Við fylgjumst með verðbólgu, vísitölu neysluverðs og þar undirliggjandi er m.a. leiguverð og reiknuð húsaleiga. Við tökum alls konar ákvarðanir í hagstjórn út af þróun, m.a. leiguverðs og húsnæðisverðs. Ég veit ekki betur en að stærsta umræðan sem hefur átt sér stað, til að mynda um fasteignamarkaðinn, hafi verið að það hafi ekki verið næg gögn um hversu mikið er verið að byggja. Flestir hafa verið að tala um að við séum ekki með yfirsýn. Við vitum ekki hvað eru margar íbúðir í byggingu. Það er ekkert óeðlilegt við að það sé fylgst með umfangi húsnæðis sem er grunnur öryggis og gæða lífs hjá fólki og sem hið opinbera hefur víðtæka aðkomu að. Við skulum halda okkur á jörðinni í þessari umræðu.