157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[16:37]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Það eru engar líkur á því að skráning leigusamninga muni hafa áhrif á leiguverð til hækkunar. Það get ég fullyrt hér í þessum ræðustól. Varðandi frystingu í 12 mánuði er í öllum samanburði við Norðurlöndin, sem við höfum verið að bera okkur sérstaklega saman við þegar kemur að húsnæðismarkaði, ekki verið að ganga lengra í þessu frumvarpi eða taka stærri skref heldur en þekkist annars staðar. Í sama samanburði erum við langt á eftir þegar kemur að réttarvernd fólks á leigumarkaði á Íslandi. Því ætla ég að greiða atkvæði með þessu mikilvæga máli, segi já.