157. löggjafarþing — 30. fundur,  10. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[16:39]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Leiðin til helvítis er vörðuð góðum ásetningi. Ég heyri það, virðulegi forseti, að hér koma hv. þingmenn stjórnarliðsins og trúa því virkilega að allt lagist ef við aukum skriffinnskubáknið. Mikil er trú þeirra, virðulegi forseti, en því miður mun ekkert af því sem hv. þingmaður vísar til raungerast. Þegar við veltum því fyrir okkur af hverju það er komið svo mikið skrifræði í landinu — enginn ætlaði sér þetta en þetta gerist svona. Ekki kemur á óvart að hæstv. ríkisstjórn auki nú skrifræðið og regluverkið. Hún flækir líf fólksins í landinu. Það er leiðinlegt að þurfa að taka þátt í þessu.

Virðulegur forseti. Ef maður gerir sitt ýtir maður á rauðan.